Eva Rún Snorradóttir hlaut Maístjörnuna

Eva Rún Snorradóttir hlaut Maístjörnuna 20. maí fyrir ljóðabókina Fræ sem frjóvga myrkrið. Að baki verðlaununum standa Rithöfundasamband Íslands og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni.

Í umsögn dómnefndar segir:

Fræ sem frjóvga myrkrið er frumleg og fjölbreytt ljóðabók þar sem skáldið Eva Rún Snorradóttir bregður á leik með ýmis form, allt frá örleikritum til prósaljóða. Fyrri hluti bókarinnar er margradda lýsing á ferð vinkvenna til sólarlanda sem reynist í senn nöturleg og fyndin. Síðari hlutinn er einlægari og myndrænni og þar eru ljóð sem lýsa vináttu, sársauka, sjálfsuppgötvun og annarlegum heimi á áleitinn hátt. Þannig beitir Eva Rún ólíkum sjónarhornum og formum sem sameina hið ljóðræna og leikræna og nær með því að draga upp sterka og margræða mynd af heiminum sem hreyfir við lesandanum.

Verðlaunin voru í þetta sinn veitt í þriðja sinn. Tilnefndar ljóðabækur voru gefnar út árið 2018.

Lestrarklefinn óskar Evu Rún innilega til hamingju!

Lestu þetta næst

Sögur til næsta bæjar

Sögur til næsta bæjar

Sagnagerð er lúmsk kúnst sem þarf að rækta. Í janúar kom saman hópur af upprennandi höfundum í...