Sparibollinn leitar eftir tilnefningum

9. janúar 2020

Í ár verður í fyrsta sinn veittur Sparibollinn – verðlaun fyrir fegurstu íslensku ástarjátninguna í bók. Á Facebook-síðu verðlaunanna segir eftirfarandi um tilurð verðlaunanna: „Ástarsögur hafa gegnum tíðina notið mismikillar virðingar, jafnvel verið flokkaðar sem kvennabókmenntir og froða. Í nútímanum, sem gjarnan litast af ógnum og óhugnaði, fer oft á tíðum óþarflega lítið fyrir ástinni.“

Leitað er eftir tilnefningum til Sparibollans. Hægt er að senda tilnefningar til dæmis í gegnum Facebook-síðu Sparibollans. Lýsingin má standa stök eða vera hluti af stærra verki. Hún má ná til andlegrar ástar og líkamlegrar. Ástar milli karla, kvenna, barna, dýra, ættingja, vina, skipa, flugvéla, fólksflutningabifreiða og svo framvegis. Eina skilyrðið er að hafa komið út á prenti eða í öðru bókarformi á árinu 2019. Hægt er að senda tilnefninguna beint til dómnefndar, en hana skipa Eyrún Lóa Eiríksdóttir, Harpa Rún Kristjánsdóttir og Sverrir Norland. Einnig er hægt að senda tilnefninguna í gegnum einkaskilaboð á síðu Sparibollans. Dómnefndin velur sigurvegara úr innsendum tillögum. 

Verðlaunin verða veitt í fyrsta sinn á árlegu málþingi Bókabæjanna austanfjalls 27. febrúar, sem að þessu sinni er helgað ástarsögum. Verðlaunagripurinn er svo ekki af verri endanum. „Höfundur fegurstu ástarjátningarinnar hlýtur sparibollann, rósumprýddan kaffibolla á fæti. Kaffibollinn er vísun í hina ótæpilegu og lífsfyllandi kaffidrykkju í bókum Guðrúnar frá Lundi. En einnig til þess að allt sem þú þarft er ást, og bolli af góðu kaffi,“ segir á síðu verðlaunanna.

Lestu þetta næst

Hvað er húð?

Hvað er húð?

Gæðablóð er sjálfsævisögulegt verk samið og flutt af þeim Davíð Þór Katrínarsyni, Jónmundi...

Alfa svíkur engan

Alfa svíkur engan

Alfa eftir Lilju Sigurðardóttur er ekki glæpasaga eftir hefðbundnu sniði, en hún fjallar þó á...

Lokkandi rós og dramatík

Lokkandi rós og dramatík

Kammeróperan setur á svið óperuna Carmen eftir franska tónskáldið Georges Bizet í Tjarnarbíó....