Rebekka Sif Stefánsdóttir

Rebekka Sif er söngkona, rithöfundur, aðstoðarritstjóri Lestrarklefans og bókaormur með meiru. Hún hefur lokið B.A. prófi í almennri bókmenntafræði og meistaranámi í ritlist við Háskóla Íslands. Tónlistin og ritstöfin hafa heillað hana frá því í barnæsku og ákvað hún fimm ára gömul að hún myndi verða söngkona og rithöfundur. Það má segja að hennar fyrsta ljóðabók hafi komið út í tónlistarformi þegar hún gaf út plötuna sína „Wondering“ haustið 2017. En sú raunverulega kom út haustið 2020 og ber heitið Jarðvegur. Fyrsta skáldsaga Rebekku, Flot, kom út vorið 2022 en það var ekki langt í næstu þar sem Trúnaður kom út sem hljóð- og rafbók hjá Storytel í júlí sama ár. Einnig hafa smásögur eftir hana birst í smásagnasafninu Möndulhalla og fleiri safnritum Blekfjelagsins. Hefðbundinn dagur í lífi Rebekku snýst í kringum ungan son hennar, verkefnastjórn, að skjótast um bæinn til að kenna ungum sem öldnum söng og ritlist ásamt því að koma fram sjálf af og til. Á kvöldin les hún og skrifar (þegar frestunaráráttan heltekur hana ekki) og svo horfir hún á Netflix þegar syfjan tekur yfir. Goodreads er hennar uppáhalds samfélagsmiðill en þar er best að setja sér lestarmarkmið fyrir árið og forvitnast um lestur annarra. Rebekka hefur yfirumsjón með Rithorni Lestrarklefans. rebekkasif [hjá] lestrarklefinn.is