Á síðasta ári kom út önnur ljóðabók Sigurbjargar Friðriksdóttur hjá bókaútgáfunni Skriðu. Ljóðabókin ber heitið Vínbláar varir og vakti áhuga minn þegar ég byrjaði að kynna mér útgáfuna Skriðu.
Bókin er fallegt prentverk, það er bókamerki úr bandi og stærðin er lítil og handhæg. Innsíðurnar hafa fölbleikan blæ og hvert ljóð fær að njóta sín á heilli opnu. Bækur Skriðu eru allar í þessum stíl og eru hönnuðurnir Snæfríð Þorsteins og Hildigunnur Gunnarsdóttir.
Sjónrænt myndmál
Vínbláar varir heillaði mig strax. Ljóðin eru svo meitluð og virkilega vönduð að ég lifði mig strax inn í bókina. Flestöll ljóðin eru stutt, aðeins ein síða, og viðfangsefnin eru fjölbreytt.
Myndmálið er ríkulegt og sjónrænt: „ekkert skiptir máli // nema minningarnar / sem svífa / í fallhlíf // fuðra upp / í lendingu“ (bls. 15) Finna má dæmi um þetta í nánast öllum ljóðunum.
Falleg nýyrðasmíði
Nýyrðasmíðin í ljóðabókinni er falleg og gengur einstaklega vel upp. Orð eins og „vonarbirta“, „skuggafjöll“ og „morgundrungi“ má finna á síðum bókarinnar. Orðavalið í ljóðunum ýtir undir upplifun lesandans.
Spunavefur
björt augu þín
daðrandi tunga
mjúkur faðmur
gljáfægðir draumar
myrk augu þín
niðrandi tunga
harður hnefi
blóðrispaðar martraðir
(Vínbláar varir, bls. 25)
Hér í ljóðinu „Spunavefur“ er andstæðum varpað upp þar sem manneskja umbreytist úr draumkenndum elskhuga í martraðakenndan óvin. Í ljóðinu má einmitt sjá dæmi um hversu mikið orðavalið skiptir máli en „gljáfægðir draumar“ og „blóðrispaðar martraðir“ eru einstaklega fallegar andstæður og er nýyrðið „blóðrispað“ einstaklega flott og lýsandi.
Taktföst áhrif
Eitt ljóð bókarinnar sker sig út úr hópnum en það er ljóðið „Þakkargjörð“. Það ljóð spannar margar blaðsíður og lýsir jarðarför með taktföstum hætti. Ljóðlínurnar eru eins og svipmyndir frá athöfninni og deginum sem eykur áhrif ljóðsins. Í því eru margar kristilegar vísanir ásamt vísunum í íslensk dægurlög.
Ljóðabókin hefur fallega heildarmynd og virkar á alla vegu. Fyrir mér hefði hún jafnvel mátt vera lengri. Bókin gæti verið tilvalin tækifærisgjöf, jafnvel í pakka með fleiri bókum frá útgáfunni.