Vestfjarðaglæpasaga sem kemur á óvart

Bókin Í djúpinu vakti athygli mína í Bókatíðindum nú í nóvember. Þetta er önnur skáldsaga Margrétar S. Höskuldsdóttur og er hún gefin út af Forlaginu. Ég verð að viðurkenna að fyrri bók hennar, Dalurinn, fór alveg framhjá mér þó hún hafi vissulega ekki farið framhjá okkur hér á Lestrarklefanum á sínum tíma. 

Í djúpinu fjallar um lögreglukonuna Rögnu og félaga hennar Berg sem fá inn á borð til sín morðmál sem gerist í Reykjavík en þar finnst athafnamaðurinn Þórður látinn í heitum potti við heimili sitt. Fyrst beinast böndin að félögum mannsins en þegar Ragna og Bergur fara að skoða málið nánar fer það að teygja anga sína vestur á firði.

Sagan flakkar um í tíma frá fyrstu blaðsíðu. Hún gerist á árinu 2023 og fyrst flakkar sagan um nokkra daga en svo fer hún reglulega aftur í atburði sem gerðust árið 1985. Í byrjun kynnumst við Þórði og konu hans Evu sem eru nýflutt í hús sitt og bjóða vinum Þórðar í matarboð heim til sín. Þar kynnumst við þeim og fáum innsýn inn í líf þeirra og tengsl Þórðar við vini sína. Vini sem hann hefur þekkt frá því á unglingsaldri og eru nú viðskiptafélagar hans. Þórður er grunnhygginn náungi sem virðist meta flottheit og ríkidæmi meira en annað. Honum virðist ekki sérlega annt um vini sína og því er ekki skrítið að böndin beinist fyrst að þeim þegar hann finnst myrtur. Ragna fer að eltast við þræði málsins og finnur á sér að hlutirnir eru ekki eins einfaldir og þeir líta út fyrir að vera. Þræðirnir teygja sig til atburða sem gerðust í heimavistarskóla á Reykjanesi árið 1985. Ragna endar á að fara vestur á firði ásamt Bergi að rannsaka málið. 

Þétt flétta með óvæntum endi

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem gefin er út íslensk spennusaga þar sem morð á sér stað og það tengist vinum þess látna á einhvern hátt og teygir sig jafnvel í fortíðina með tilheyrandi tímaflakki. Þetta er heldur ekki í fyrsta sinn þar sem lögreglupar rannsakar málið, lögreglupar þar sem annað er með samviskubit yfir að sinna ekki fjölskyldu sinni nógu vel og hitt er að glíma við hjónabandsörðugleika. Svo nei, kannski er ekki verið að finna upp hjólið þarna, en ég vil meina að það eigi það sama við um spennusögur og á svo oft við um ástarsögur. Þó verið sé að tikka í box sem oft hafa verið nýtt áður við skrif slíkra sagna að þá þýðir það ekki að það sé ekki frumleiki í sögunni og eitthvað nýtt. 

Margrét tekur þessi klassísku box og útbýr sögu sem er með þétta fléttu og nær að vera hæfilega flókin þannig að auðvelt er að fylgja henni eftir. Hún er líka ekki það einföld að maður sjái söguendinn fyrir sér strax. Fléttan kom mér mjög á óvart og endirinn einnig, svo mikið á óvart að ég sá hann alls ekki fyrir mér. Persónusköpunin er góð, þó hún mætti vera dýpri og sumar persónur voru kannski bara aukaatriði. Það sem mér þótti virkilega vel gert fyrir utan fléttuna og endinn, og ég dett oft í einhver smáatriði, eru lýsingar Margrétar á staðháttum fyrir vestan. Hún gerði það einstaklega vel, sérstaklega á Ísafirði, og kunni ég vel að meta litlu smáatriðin þar. Ég var sjálf á Ísafirði í sumar, borðaði á veitingastaðnum Logn, kom við í bakaríinu á móti matvörubúðinni og svo framvegis. Smáatriðin í lýsingunum þar og á öðrum stöðum í bókinni gerðu mér kleift að lifa mig vel inn í söguna. Ég hafði svo líka smá samúð með landafræðikunnáttu Rögnu. Mikið sem ég tengdi við hana og skil hana bara fullkomlega vel!

Sjálfstætt framhald?

Í djúpinu er vel skrifuð og áhugaverð spennusaga sem kemur á óvart. Það væri ekki leiðinlegt að lesa framhaldssögu þar sem Margrét heldur áfram með lögreglukonuna Rögnu. Ég þurfti fleiri kaffibolla en vant er daginn eftir að ég las bókina sökum þess að ég hafði vakað ögn of langt inn í nóttina til þess að klára. Ég þarf nú klárlega að skreppa á bókasafnið og ná mér í fyrstu bók Margrétar, Dalurinn, og lesa hana.

 

Lestu þetta næst

Eins konar dans

Eins konar dans

Moldin heit er önnur skáldsaga Birgittu Bjargar Guðmarsdóttur en fyrir hana hlaut hún...

Þörf bók um missi

Þörf bók um missi

Núna á dögunum kom út íslensk þýðing á barnabók eftir John Dougherty og Thomas Docherty...

Að hverfa í tómið

Að hverfa í tómið

Jónas Reynir Gunnarsson er einn af okkar athyglisverðustu rithöfundum en hann greip landann með...