Það hefur verið svoleiðis rífandi gangur á lestrinum frá því að ég leit aðeins upp úr kanínuholu...
Anna Margrét Björnsdóttir
Anna Margrét er þýðandi, skúffuskáld og eilífðarstúdent, en hefur lokið grunnnámi í ensku og meistaranámi í hagnýtri ritstjórn og útgáfu. Hún býr í Mosfellsbæ, ásamt sambýlismanni sínum Elvari og kanínunni Móra. Þegar hún er ekki í vinnunni, að læra eða að lesa, syngur hún með Söngsveitinni Fílharmóníu eða spilar D&D með vinum sínum.
Sem barn var hún afskaplega mikið fyrir bækur, raunar svo mikið að hátíðlegasti dagur ársins var þegar Bókatíðindi komu í hús fyrir jólin. Þau voru lesin spjaldanna á milli og merkt við allar álitlegustu bækurnar. Þær allra álitlegustu fengu 2-3 hök, í eins konar fyrirfram stjörnugjöf.
Anna Margrét er gefin fyrir dystópískar ungmennasögur, furðusögur, glæpasögur og ástarsögur, en það rata allra bóka kvikindi inn í bókahillurnar hennar. Sem fullorðinn bókaormur hefur hún sætt sig við þá lykilstaðreynd lífsins að öll húsgögn eru fyrst og fremst geymslustaðir fyrir stafla af bókum sem stendur til að lesa.
Fleiri færslur: Anna Margrét Björnsdóttir
Bókabýtti
"Ég er með hugmynd," sagði ég upp úr þurru við eiginmann minn í byrjun síðasta mánaðar. Við vorum...
Kolfallin fyrir höfundi: Leigh Bardugo
Síðasta sumar tókum við hjá Lestrarklefanum saman leslista þar sem kenndi ýmissa grasa. Mitt...
Abby Jimenez og Vageode goðsögnin
Í upphafi var orðið og orðið var vageode. Þetta þarfnast líklega frekari skýringa. Fyrir nokkrum...
Elskuleg eiginkona mín
Ég er gefin fyrir sálfræðitrylla og það er fátt sem kitlar mig jafn mikið og óáreiðanleg...
Hámlestur
Um daginn gerði ég svolítið sem ég hafði ekki gert í skammarlega langan tíma: Ég datt svo...