Íslenskir barnabókahöfundar fordæma brottvísanir á börnum

Íslenskir barna- og unglingabókahöfundar fordæma brottvísanir íslenskra stjórnvalda á börnum á flótta og fjölskyldna þeirra. Höfundarnir þrjátíu tveir sem hafa skrifað undir yfirlýsinguna segja óviðunandi að 75 börnum hafi verið synjað um vernd á Íslandi það sem af er árinu og hvetja stjórnvöld til að virða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Í yfirlýsingunni er bent á að Ísland teljist á meðal einna ríkustu þjóða heims og beri að axla ábyrgð á við aðrar þjóðir þegar kemur að vanda fólks á flótta frá stríðshrjáðum svæðum. Einnig telji höfundarnir ekki forsvaranlegt að senda börn á flótta til Grikklands, þar sem aðstæður í hæliskerfinu hafi verið metnar ófullnægjandi. Hægt er að lesa yfirlýsinguna í heild hér að neðan.

Eftirfarandi höfundar skrifuðu undir yfirlýsinguna:

Arndís Þórarinsdóttir
Anna Heiða Pálsdóttir
Benný Sif Ísleifsdóttir
Bergrún Íris Sævarsdóttir
Birgitta Elín Hassel
Birgitta Haukdal
Bryndís Björgvinsdóttir
Brynhildur Þórarinsdóttir
Davíð Hörgdal Stefánsson
Elísa Jóhannsdóttir
Guðni Líndal Benediktsson
Gunnar Helgason
Hildur Knútsdóttir
Hilmar Örn Óskarsson
Hjalti Halldórsson
Ingibjörg Valsdóttir
Jenný Kolsöe
Jóna Valborg Árnadóttir
Katrín Ósk Jóhannsdóttir
Kristín Helga Gunnarsdóttir
Kristín Ragna Gunnarsdóttir
Linda Ólafsdóttir
Margrét Tryggvadóttir
Ragnheiður Eyjólfsdóttir
Ragnheiður Gestsdóttir
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir
Sif Sigmarsdóttir
Sigrún Eldjárn
Vala Þórsdóttir
Þórdís Gísladóttir
Þorgrímur Þráinsson
Ævar Þór Benediktsson

Lestu þetta næst

Sögur til næsta bæjar

Sögur til næsta bæjar

Sagnagerð er lúmsk kúnst sem þarf að rækta. Í janúar kom saman hópur af upprennandi höfundum í...