Ef þetta er ekki bara einn af skemmtilegustu titlum flóðsins? BABB er nýjasta barnabók rithöfundateymisins Arndísar Þórarinsdóttur og Huldu Sigrúnar Bjarnadóttur sem síðast heilluðu mig upp úr skónum með bókinni Mömmuskipti.
Í þetta sinn er það stúlkan Helga Sjöfn sem er í aðalhlutverki og barnið hefur einstaklega mikla þráhyggju fyrir hvölum. Hún skrópar í skólanum til að fara með afa sínum með túrista í hvalaskoðunarferðir. Hverjum dettur þetta eiginlega í hug? Vel gert Arndís og Hulda. Þar sem skróp er nú ekki svo samfélagslega samþykkt þá þarf að siða Helgu Sjöfn til og hún er send á afskaplega leiðinlegt námskeið sem refsingu, nei ég meina, til mannbóta. Þar á hún að læra félagsfærni fyrir börn í vanda. Þar kynnist hún sveitadrengnum Jóni og verður skotin í illkvittnum fótboltastrák.
Hvalaskoðun frekar en sjálfskoðun
Fyrst var ég smá efins, þar sem ég er ekki mikil áhugamanneskja um hvali en Helga Sjöfn heillaði mann með sér. Hún er uppátækjasöm og hress ung stúlka og það er virkilega skemmtilegt að lesa um fjölbreytta daga hennar. Foreldrar hennar hafa nýverið skilið og því er tilveran svolítið skrítin, pabbi hennar hefur eignast tvíbura með nýrri konu og svo er pabbi hennar í raun ekki blóðfaðir hennar, hvað þýðir það fyrir framtíðina? Mun hann hætta að vilja að vera pabbi hennar? Það eru miklar og stórar tilfinningar sem fylgja þessum hugleiðingum, auðvitað, og í staðinn fyrir að takast á við þær vill Helga Sjöfn gleyma sér úti á sjó.
Þetta er þroskasaga bæði Helgu Sjafnar og nýja vinar hennar, Jóns. Jón þurfti að flytja í bæinn því að afi hans veiktist og þarf að fara reglulega upp á spítala í blóðskilun. Þannig hann er einnig að takast á við breyttan veruleika og saman mynda þau fallega og fyndna vináttu. Ádeila á hvalveiðar fléttast inn í frásögnina en börnin mæta á mótmæli og eru auðvitað alfarið á móti þeim. Svo var óvænt morðgáta leyst í lokin sem gerði frásögnina æsispennandi síðustu kaflana.
Ég þeyttist í gegnum bókina, kaflarnir eru stuttir og krúttlegar myndir Estelle Pollaert prýða flestar síður. Textinn er lipur og skemmtilegur svo maður flýgur áfram í gegnum lesturinn. Bæði foreldrar og börn munu heillast af ævintýrum og óförum Helgu Sjafnar. Svo verður maður einnig örlítið fróðari um hvali eftir lesturinn, ekki skemmir það fyrir.





