Glæpasagnastjarnan stendur fyrir sínu

17. nóvember 2026

Þau sem urðu eftir er nýjasta glæpasaga Evu Bjargar Ægisdóttir. Hún kom út á dögunum og hefur nú þegar hlotið verðskuldað lof.

Eva Björg hefur gefið út fjölda glæpasagna frá árinu 2018 og hafa bækur hennar um rannsóknarlögreglukonuna Elmu slegið í gegn hér á landi og víðar. Í haust var sýnd þáttaröð í Sjónvarpi Símans, Elma, sem byggir á Marrinu í stiganum, fyrstu bókinni um Elmu. Þetta eru afar spennandi og vel gerðir þættir og Unnur Birna Backman er flott í aðalhlutverkinu.

Verstu sambandsslit allra tíma

Í Þau sem urðu eftir kynnir Eva Björg nýja persónu til leiks, hana Rakel. Bókin hefst á því sem hlýtur að teljast meðal verstu sambandsslita allra tíma. Rakel missir athyglina við akstur þegar að kona hringir dyrabjöllunni heima hjá henni og sést á myndavél hágrátandi fyrir utan húsið. Rakel veit að eitthvað alvarlegt er á seyði en athyglisbresturinn á 80 kílómetra hraða endar með þeim afleiðingum að hún lendir í alvarlegu bílslysi og missir fótinn. Á spítalanum ákveður Helgi maðurinn hennar að rífa bara plásturinn strax af og segja henni þegar hún vaknar úr dáinu sem henni er haldið í að konan fyrir utan útidyrahurðina þeirra, Alexía, sé ófrísk eftir hann og hann ætli að skilja við Rakel eftir þeirra tuttugu ára samband. Rakel fer í veikindaleyfi frá kennslu sem hún hefur sinnt undanfarinn áratug og þarf að fara í reglulega göngutúra til að jafna sig á slysinu og venjast nýjum gervifæti. Í þessum göngutúrum fer hún að hlusta á hlaðvörp og fyrr en varir stofnar hún sitt eigið hlaðvarp um gömul mannshvörf. Ári eftir slysið er hlaðvarpið hennar orðið mjög vinsælt, og eitt kvöld úti á lífinu fær Rakel ábendingu um að skoða þrjátíu ára gamalt hvarf Viktoríu, fjórtán ára unglingsstúlku á Stykkishólmi. Rakel, sem hefur áður haldið sig við erlend mál, hugsar sig tvisvar um áður en hún tekur málið að sér. Þegar hún fer svo af stað að rannsaka málið eru alls ekkert allir ánægðir með að hún sé að grafa upp hluti úr fortíðinni. Rakel tekur að sér verkefnið með það í huga að sýna afleiðingar mannshvarfa á samfélag, en þegar á líður er spurning hvort henni takist að upplýsa um þetta gamla mál.

Afar grípandi bók

Þau sem urðu eftir er ótrúlega grípandi saga. Þetta er fyrsta glæpasagan sem ég les í þessu flóði en ég tel allar líkur á að þetta verði einn vinsælasti krimminn í jólabókaflóðinu í ár. Það eru engar ýkjur að ég byrjaði að lesa þessa bók á laugardagsmorgni og gat ekki lagt hana frá mér fyrr en ég lauk henni eftir miðnætti sama dag. Ég hef lesið allt höfundarverk Evu Bjargar og er yfirleitt ánægð með bækur hennar en Þau sem urðu eftir er klárlega ein af hennar bestu.

Stykkishólmur rammar söguna inn

Persónusköpunin er góð. Rakel er í erfiðum aðstæðum en sýnir sinn innri styrk meðan hún byggir sig upp á ný í kjölfar slyssins og sambandsslitanna. Hún er ekki eins nærgöngul og margir spæjarar en nær framförum í málunum. Hún gerir jafnframt byrjendamistök samhliða því. Ásta, vinkona Viktoríu sem vekur athygli Rakelar á málinu, er margslunginn karakter og afar vel skrifuð. Sjónarhorn þeirra beggja byggja upp söguna á spennandi hátt. Ég hef notið þess að sjónarsvið bókanna um Elmu sé Akranes og fundist það kærkomin breyting frá krimmum sem gerast í Reykjavík. Í þetta sinn kemur Stykkishólmur sterkur inn og rammar smábæjarlífið vel í kringum þetta mannshvarf. Margfaldar tengingar eru jú milli flestra sem koma að málinu.

Það verður algengara í raunheimum að rannsókn eldri óupplýstra mála fari fram hjá áhugaspæjurum í gegnum hlaðvörp og því fannst mér uppbygging bókarinnar og hvernig tvinnað er inn hlaðvarpinu og brotum úr því virka. Margir lesendur bókarinnar hlusta eflaust á glæpahlaðvörp og munu tengja við þetta. En það sem heppnast best í bókinni er hvernig lesandinn fer að efast um allar upplýsingar og hvaðan þær koma, og velta því upp hver sé að segja sannleikann og hvers vegna sumir eru að ljúga.

Lestu þetta næst

Í hugarheimi Hinriks

Í hugarheimi Hinriks

    Vetrarþrestir er nýjasta skáldsaga Bennýjar Sifjar Ísleifsdóttur og kom hún út á...