Jólabókaflóðið er dásamlegt fyrirbæri. Það gefur okkur tækifæri til að sökkva okkur ofan í rjómann af íslenskri útgáfu og gefa bækur að gjöf til vina og vandamanna. En flóðið hefur líka sína galla. Fjöldi bóka sem kemur út í flóðinu eru gersemar en lenda undir. Það er nefnilega mjög erfitt að haldast á floti í flóðinu.
Okkur í Lestrarklefanum langaði að hampa sérstaklega þremur bókum og höfundum þeirra. Þetta eru bækur sem hefðu mátt fá meiri athygli í flóðinu og eiga erindi til fleiri lesenda.
Hér að neðan má finna viðtal við Alexander Dan, höfund bókarinnar Hrímland – Skammdegisskuggar. Í lok viðtalsins er upplestur úr bókinni.