Söderbokhandeln Hansson & Bruce
Notaleg jazz tónlist tekur á móti vegfarendum þegar þeir opna hurðina á þessari huggulegu bókabúð á göngugötunni Götgötunni í Södermalm. Þessi bókabúð er af mörgum talin ein sú allra fallegasta og besta í Stokkhólmi. Þetta er sjálfstæð bókabúð sem hefur verið á sama stað í rétt tæpa öld, eða síðan árið 1927. Bókabúðin er þekkt fyrir kósý og gamaladags stíl. Þar er að finna fjölda bóka á fjölbreyttum sviðum og mjög gott úrval af bókum á ensku.
The English Bookshop
Rönnells Antikvariat
Þetta er risastór bókabúð sem sérhæfir sig í notuðum bókum. Það er bæði úrval af bókum á sænsku og ensku og er afar gaman að gramsa í fornbókum þarna inni.
Þessi búð er ekki einungis bókabúð heldur líka samkomustaður þar sem reglulega fara fram tónleikar og má finna blað við útidyrahurðina sem sýnir prógramm mánaðarins.
Það má einnig versla falleg póstkort, púsl og minnisbækur og því ættu flestir að finna eitthvað við sitt hæfi þarna inni.
Papercut
Deckarbokhandel i Gamla Stan
Hornstulls bokhandel
Ég verð bara að nefna bóksalann á horninu. Ég bý í næsta húsi við hann í Södermalm hverfinu og heimsótti hann fyrstu vikuna mína í Stokkhólmi. Ég tek ofan af fyrir fólki sem opnar bókabúðir á þessum tímum þar sem barist er um athyglina og vil styðja við sjálfstæða bóksala. Getum við kannski bara hætt að koma með vínflösku í matarboð og komið með bók í staðinn? Nei bara hugmynd. Hér eru nokkrar hillur með enskum bókum, skemmtilegar barnabækur og smábarnabækur á sænsku (tilvaldar til að æfa börnin í skandinavísku) og ágætis úrval af spilum og púslum.
Junibacken
Undir lokin vil ég vekja athygli á sætu búðinni á Junibacken barnasafninu. Þar er að finna helstu klassísku barnabókmenntir Svíþjóðar og gott horn er til að lesa og skoða bækur með börnunum. Mér sýndist flestar bækur vera á sænsku, en það getur samt sem áður verið gaman að staldra við og fletta bókunum. Svo er hægt að kaupa Línuföt og alls konar skemmtilegt dót.











