Þrjósk, öflug og sérvitur Perla

29. júlí 2026

Forsíðukápa

Jónína Leósdóttir sendi frá sér nýja bók í byrjun sumars með nýjum persónum sem eru í þetta skiptið ekki löggur, sálfræðingur eða eldri kona í einkaspæjaragír. Bókin heitir Algjör perla og kom út hjá Máli og menningu líkt og fyrri bækur Jónínu. 

Það skal fúslega viðurkennt að ég hef lesið margar af fyrri bókum Jónínu og líkað vel. Þegar rithöfundur sem hefur hingað til skrifað bækur sem maður hefur verið ánægður með sendir frá sér bók sem er úr annarri átt með nýjum persónum – þá verður kona auðvitað forvitin. Ég var því spennt að lesa Algjör perla og þá sérstaklega eftir að ég las aftan á bókina.

Bókin fjallar um Perlu, konu á áttræðisaldri sem vaknar upp á Landspítalanum þar sem kemur í ljós að hún er hálflömuð eftir að hafa fengið heilablóðfall. Fyrsta hugsun hennar þá er hvað hún eigi að gera við líkið sem er á stað þar sem það getur ómögulega verið áfram. Á fyrstu köflum bókarinnar kemur í ljós að Perla býr ein í stóru húsi í smábæ fyrir norðan. Hún á tvö börn, Reyni og Ólöfu, sem eru bæði uppkomin og búa ekki í sama bæ og hún. Perla leggur alla sína krafta í að komast aftur á lappir og aftur norður til að leysa úr þessu vandamáli, þessu litla vandamáli með líkið þarna.

Perla, Víðir og líkið

Uppbygging sögunnar er skemmtileg og persónurnar sumar hverjar mjög áhugaverðar. Perla er aðalsögupersónan en auk hennar koma Reynir sonur hennar, Nikkólína (Nikkó) sonardóttir hennar og Hrefna, móðuramma Nikkó, mest við sögu að mér fannst. Já og einnig Víðir, eiginmaður Perlu. Honum og hans hlutverki má ekki gleyma. Persónurnar eru vissulega misáhugaverðar en mér þóttu Perla og Hrefna standa uppúr og þá sérstaklega þeirra tengsl sem og tengsl Perlu við eiginmann sinn. 

Perlu tekst að ná sér sæmilega á strik og fara aftur norður og þar hefst sagan eiginlega og ráðgátan með líkið. Hvar er það? Hver er það og af hverju er Perla að fela lík? 

Það kemur fljótt í ljós að Perla er mjög þrjósk kona. Það er alls ekki slæmt að mínu mati en ég tengdi reyndar líka töluvert við þrjóskuna. Henni er líka mjög umhugað um hvað öðrum finnst um hana og hennar mál. Hún fer þetta á þrjóskunni svo sannarlega og vill hafa hlutina og sitt einkalíf út af fyrir sig og þá sérstaklega svo hún geti fundið út úr þessu með líkið. 

Hrefna, móðuramma Nikkó, kemur síðan til sögunnar og setur áætlanir Perlu nokkuð úr skorðum. Það á  sérstaklega við um þá ósk Perlu að vera látin í friði á meðan hún finnur út úr hlutunum. Ég bjóst þó við að þær yrðu aðeins nánari en raun ber vitni og mögulega einhverjir félagar en það náði ekki svo djúpt sem mér fannst miður. Samband Perlu við Víði, eiginmann hennar er svo annar skemmtilegur vinkill og áhugaverð tengsl þar á milli þeirra.

Frábær flétta en svo…

Það verður ekki tekið af Jónínu að hún er virkilega lagin við að skapa skemmtilegar og sérstakar persónur. Það er líka alltaf ánægjulegt þegar sögupersónur eru í eldri kantinum, ekki síst konur. Það er vöntun á slíkum persónum í bókum almennt! 

Helsti galli sögunnar er að hún er nokkuð lengi  að byggjast upp. Bætt er í fléttuna fram eftir bókinni þó án þess að mér þætti sagan beinlínis langdregin. Undir lokin leysist hinsvegar alltof hratt úr fléttunni og margt gerist á mjög stuttum hluta sögunnar. Mér fannst það dálítið leiðnlegt og endirinn ögn endaslepptur. Kannski urðu vonbrigðin þó mest vegna þess að ég var farin að sjá fyrir mér fleiri bækur þar sem Perla og Hrefna myndu mynda eitthvert svakalegt teymi og brasa ýmislegt saman. Engu að síður er Algjör perla bók sem vert er að lesa og Perla er skemmtileg og eftirminnileg persóna.

Lestu þetta næst

Í hugarheimi Hinriks

Í hugarheimi Hinriks

    Vetrarþrestir er nýjasta skáldsaga Bennýjar Sifjar Ísleifsdóttur og kom hún út á...