Sú besta hingað til

4. desember 2025

Bókaútgáfan Bókabeitan hefur verið hvað duglegust að veita fantasíuunnendum lesefni. Síðustu ár hafa komið út bækur í bókaflokknum Dreim, forleikinn Fríríkið árið 2021 og svo fyrsta bókin í þríleiknum sjálfum, Dreim: Fall Draupnis, árið 2023. Þetta er mentaðarfullur og flókinn fantasíuheimur og því ekki skrítið að höfundurinn Fanney Hrund Hilmarsdóttir taki sér nokkur ár til að fínpússa bækurnar. Í ár kemur út önnur bókin, Dreim: Dýr móðurinnar. Ég hikaði smá við að taka hana upp því Fall Draupnis hafði verið svo myrk og þung, en það voru óþarfar áhyggjur hjá mér. Ég kolféll fyrir ævintýraheiminum sem var kynntur fyrir lesandanum í þessari bók.

Í upphafi bókar vakna börnin og dreimfararnir Alex, Bella, Asili og Daríus upp í Ngala, einu af fjórum landa í Dreim. Heimur Ngala er virkilega heillandi, þar má finna þykkan regnskóg, dáleiðandi regnbogaá, hina hættulegu harmahamra og Kvikufannir – ógurlega jökulbungu sem er ólík þeirri sem við þekkjum úr raunheimum, sjóðandi kvika kraumar undir yfirborðinu. Dreimfararnir þurfa að leggja í flókið ferðalag til að komast í helli gárunganna, þeir hafa að geyma mikilvægan spádóm sem mun hjálpa börnunum í báráttunni gegn mykrinu sem hótar að taka yfir bæði Dreim og raunheima. 

 

Skapofsi, fyrsta skot og duldir kraftar

Sagan er ekki aðeins af ferðalaginu heldur innri báráttu hvers og eins dreimfara. Skipt er um sjónarhorn reglulega og dreimfararnir, ásamt Staurian (dreimvárunni sem verndar og leiðbeinir þeim), fá sitt pláss í sviðsljósinu. Hver persóna fær sitt málsnið og mér fannst það takast einstaklega vel upp í þessari bók að skapa hverri persónu sína einstöku rödd. Alex fær svolítið að leiða söguna en hann er drengur á barmi unglingsára sem er svakalegur brandarakall en með mikinn skapofsa líka. Hans helsti óvinur er Daríus, sem er einn af dreimförunum, en hann lagði Asili, litlu systur Alex, í einelti í raunheimum. Daríus er þó á sínu eigin þroskaferðalagi og loksins fer að glitta í samkenndina sem hefur legið í dvala innra með honum. Bella er unglingsstúlkan í hópnum og sér varla annað en Staurian, ást og losti stjórna allri hennar hegðun. Sú yngsta í hópnum, Asili, virðist vera á mikilvægasta ferðalaginu en innra með henni búa öflugir kraftar sem enginn af þeim gerir sér grein fyrir. 

 

Hrikalega metnaðarfull furðusaga

Í Dýr móðurinnar finnst mér höfundur loksins hafa fundið rétta taktinn, réttu raddirnar fyrir persónurnar og flæðið sem svona hrikalega metnaðarfull furðusaga þarf á að halda. Ég greip bókina alltaf þegar ég fékk tækifæri til og rann í gegnum hvern kaflann á fætur öðrum. Bygging bókarinnar er úthugsuð og spennan er þétt í gegnum allt verkið. Það kom mér svolítið á óvart þegar ég hóf lestur að það var QR-kóði við upphaf hvers kafla. Hann hafði að geyma slóð á Spotify-playlista með hljóðheim sem passaði hverjum kafla. Ég var efins í upphafi en fann svo að ég varð spennt fyrir því að heyra hvaða hljóðheimur fylgdi hverju sinni. Í fyrri bókinni, Falli Draupnis var hljóðheimurinn settur í lok bókar og því áttaði ég mig ekki á því að hlusta á hann á meðan á lestrinum stóð. Þetta er fín lausn og mér fannst þetta bæta nýrri vídd við lesturinn. 

 

Dreim: Dýr móðurinnar er heillandi og spennandi furðusaga, klárlega mín uppáhalds úr þessari seríu. Viðurkenni að það var vakið fram á nótt til að klára … Ég fékk hroll við lestur síðasta kaflans og trúi ekki að ég þurfi að bíða í nokkur ár eftir framhaldinu! Finnst það svolítið illa gert … Ég var alveg límd við sögu þessara persóna sem manni er farið að þykja svo vænt um, það eru allavega mjög háar væntingar hér á bæ fyrir lokabókinni í þríleiknum.

Lestu þetta næst

Glóandi hættulestur

Glóandi hættulestur

Blaka er nýjasta bók Ránar Flygenring rithöfundar og myndhöfundar. Í fyrra tefldi hún fram líklega...