Líkaminn talar

3. september 2026

Heyrðu mig er einstakt sviðsverk sem flutt er í Ásmundarsal. Sveinbjörg Þórhallsdóttir er danshöfundur verksins en það fjallar um uppvöxt dóttur hennar, Diljár Sveinsdóttur, sem fæddist með mjög takmarkaða heyrn og fór ung að aldri í kuðungsígræðslu í Svíþjóð. Sagan sem er sögð í verkinu er því persónuleg en umgjörðin er fagleg og hugað er öllum smáatriðum. Jóní Jónsdóttir gerði innsetningu sem dansverkið er flutt innan og hannaði fallega búninga sem tóna vel við innsetninguna.  Þó er ágætt að taka fram að þetta er aðeins hluti stórs teymis sem kemur að viðamiklu umfangi sýningarinnar. Innsetning Jóníar byggir á anatómíu eyrans, bifhárunum og kuðungnum sem kemur mjög skemmtilega út. Fagurfræði sviðsetningarinnar er heildstæð og þjónar verkinu án þess þó að taka yfir, það er að segja, saga Diljár er í forgrunni.

Reyndar finnst mér fagurfræði Ásmundarsals sjálfs halda mjög fallega utan um flest verk sem þar eru flutt og mér finnst ég alltaf mjög lukkuleg þegar ég fæ að sitja á áhorfendabekknum þar enda glæsilegt hús að öllu leyti. Listafólkið sem stóð að sýningunni var líka búið að útbúa húsið þannig að um leið og gengið er inn má sjá ljósmyndir sem unnar eru upp úr sýningunni á veggjum kaffihússins og niðri, í gryfjunni, er myndbandsverk þar sem við sjáum Diljá borða appelsínu á þéttsetnu veitingahúsi og okkur er boðið upp á eyrnaskjól til þess að geta upplifað hljóðheiminn eins og hún gerir.

Sannur og kraftmikill dansari

Diljá er einstaklega sannur og kraftmikill performer. Það er í sannleika sagt algjör unun að horfa á hana. Hún hefur svo mikla natni og tjáningu í svipbrigðum og fingrum að ég fór að velta fyrir mér hvort þar mætti greina einhvers konar döff gróða.[i] Í það minnsta hefur mér þótt svona sjáanleg tjáning gjarnan einkenna fólk sem talar táknmál og það skilar sér í tilfelli Diljár í mjög áhugaverðum flutningi sem heldur áhorfandanum allan tímann.

Fyrir utan það eru allar hreyfingar hennar nákvæmar og fallegar. Flestir dansarar kannast við tugguna sem danskennarar hafa iðulega á heilanum um að stöðva aldrei hreyfinguna. Sem sagt að ein hreyfing leiði beint inn í þá næstu. Þetta gerir Diljá stórkostlega vel og það var í raun aldrei að sjá að líkaminn væri alveg kyrr. Verkið er um það bil 50 mínútna langt og Diljá dansar allan tímann og af sömu færninni allan tímann. Það var engin leið að sjá að hún þreyttist á meðan á sýningunni stóð.

Kóreógrafían er engu síðri enda hefur Sveinbjörg lengi verið einn af mínum uppáhalds danshöfundum. Hún er svakalega fær í sínu starfi og nýtir sér mýkt og kraft í fullkominni blöndu til þess að skila af sér þessari áhrifaríku sögu dóttur sinnar. Táknmálið þjónaði kóreógrafíunni á gullfallegan hátt sem og svipbrigði Diljár smella líka eins og flís við rass við dansformið og þá sérstaklega í verki eins og þessu þegar verið er að segja áhorfendum sögu. Það var líka sniðugt augnakonfekt þegar margar hendur stingast út um tjaldið sem rammaði inn sviðið og tala táknmál. Til þess að það hefðist þurfti auðvitað fleiri dansara en þær Júlía Kolbrún Sigurðardóttir, Bjartey Elín Hauksdóttir og Sóley Ólafsdóttir fara með þau hlutverk.

[i] Döff gróði er sá vitsmunalegi, skapandi og menningarlegi gróði sem fylgir döff fólki og menningu.

Saga sögð af leikgleði

Leikgleði og frústrasjónir barnsins eru fangaðar vel í flutningi Diljár og sagan leiðir áhorfendur í gegnum uppvöxtinn með þrautseigju, elju og kraft að leiðarljósi.

Mæðgnasamband Diljár og Sveinbjargar er sviðsett á einlægan og fallegan hátt án þess þó að það renni út í að vera klisjukennt. Það er falleg mýkt á milli þeirra og í dansi ná þær að tjá áhorfendum tilfinningarnar sem fylgja því að efla barnið sitt í að æfa heyrnina, talfærnina og smám saman ýta því af stað út í heiminn. Sama má segja um systrasamband Diljár og Lísbetar sem var mjög skemmtilegt uppbrot á sýningunni. Dýnamíkin á heimilinu verður önnur þegar einn fjölskyldumeðlimurinn heyrir ekki og ég varð snortin við að sjá hvernig þær sviðsettu slúður og leik sín á milli þar sem Lísbet mæti Diljá í hennar skynheimi á samt svo hversdagslegum heimavelli stelpna.

Heyrnartækin eru sjálf notuð sem tákn og eru látin hafa áhrif á hljóðheim verksins sem mér þótti sniðugt. Hljóð, sviðsmyndin og ljós umföðmuðu verkið einstaklega vel og studdu við bakið á sögunni sem mæðgurnar eru að segja. Notast er við dempað tal og þagnir til að undirstrika enn frekar hvernig heimur heyrnarlausra og/eða skertra er ólíkir heimi þeirra sem heyra. Urður Hákonardóttir sá um tónlistina og á gott hrós skilið fyrir.

Aðrir dansarar verksins stóðu sig mjög vel og líkamarnir mynduðu saman flottar formasjónir en ég spurði mig stundum hver tilgangur þeirra var í sjálfri frásögninni. Hvert einasta smáatriði verksins var persónulegt við Diljá og hennar uppvöxt og mín upplifun var sú að allir þættir verksins væru sterkastir þegar þeir þjóna sögu Diljár bersýnilega.  

Ég viðurkenni að mér brá smá þegar sýningunni lauk, ég hefði alveg getað setið mun lengur við þetta en það er kannski einmitt galdurinn. Leave them wanting more og allt það.

Lestu þetta næst

Í hugarheimi Hinriks

Í hugarheimi Hinriks

    Vetrarþrestir er nýjasta skáldsaga Bennýjar Sifjar Ísleifsdóttur og kom hún út á...