Íslenskir barna- og unglingabókahöfundar

1. nóvember 2019

Þegar nóvember gengur í garð eru minna en tveir mánuðir í jólin og hægt og rólega fer fólk að undirbúa sig undir komandi tíð. Jólaljósin, skammdegismyrkrið, kertaljós, hlýtt teppi og síðast en ekki síst – góð bók. Við sem fylgjumst með bókabransanum sjáum vel að jólin nálgast. Í hverri viku koma nýjar bækur á markaðinn, hver annarri áhugaverðari. Jólabókaflóðið er byrjað!

Fyrir ári síðan voru uppi háværar raddir um skort á umfjöllun um barna- og unglingabækur. Lestrarklefinn vill svara þessu kalli í ár og leggja sérstaklega áherslu á umfjöllun um barna- og unglingabækur fyrir jólin.

Í nóvember og desember mun Lestrarklefinn því birta viðtöl við íslenska barna- og unglingabókahöfunda, auk umfjallana um bækurnar. Hverju viðtali fylgir textabrot úr bók höfundarins. Kastljósinu verður beint að okkar hæfileika- og hugmyndaríku höfundum í þeirri von að barna- og unglingabækur nái að hefja sig upp fyrir kliðinn frá annarri afþreyingu. Og í þeirri von að barna- og unglingabækur rati í fleiri jólapakka.

#íslenskirbarnabókahöfundar #íslenskirunglingabókahöfundar

Lestu þetta næst

Er lífið kátur Kabarett?

Er lífið kátur Kabarett?

Já, svo virðist vera. Í það minnsta er það veruleikinn inni í Þjóðleikhúskjallaranum sem hefur...

Taðskegglingar sameinist

Taðskegglingar sameinist

Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir hefur grínast og teiknað sig inn í hjörtu landsmanna með margvíslegum...

Heilun listamannsins

Heilun listamannsins

The Artist's Way kom fyrst út í Bandaríkjunum árið 1992 og markaði upphafið að „The Artist's Way"...

Allt það sem koma skal

Allt það sem koma skal

Ljóðsagan Í hæfilegu magni er annað útgefið verk höfundarins Heiðu Vigdísar Sigfúsdóttur og kom út...