Alþjóðlega bókmenntahátíðin í Reykjavík verður haldin næstu daga. Hátíðin var sett í dag í...
Katrín Lilja
Katrín er sagnfræðingur og blaðakona sem hefur frá unga aldri setið með nefið ofan í bók. Það var henni eðlislægt. Hún trúði því að jafnaldrar hennar hefðu sömu hneigingu til bóka og það var ekki fyrr en á sextánda aldursári sem hún gerði sér grein fyrir að ef til vill var lesturinn ekki eins eðlislægur öðrum í kringum hana.
Þá vöknuðu spurningar um það hvort það þætti eðlilegt að ganga með bækur á sér hvert sem var farið. Hvort það væri eðlilegt að vera með bók innanklæða eða í veskinu öllum stundum? Þegar þessar vangaveltur spruttu upp gekk hún með Góða dátann Svejk innanklæða á skólasetningarathöfn Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi. Góði dátinn var innbundin bók og fremur óhentug innanklæða.
Yndislestri hrakaði ört næstu árin, samfara meiri lestri á skólabókum. En nú er skólagöngu loksins lokið og yndislesturinn óðum að hefjast aftur eftir langan dvala. Katrín les mikið af barna- og ungmennabókum enda er lesið fyrir börnin á hverju kvöldi. Einnig slæðist ein og ein skáldsaga inn á milli.
Katrín er búsett á Akranesi ásamt þremur sonum, tveimur köttum og einum eiginmanni. Hún vinnur sem lausablaðamaður og sinnir eigin verkefnum í frítíma sínum ásamt því að lesa og skrifa um bækur.
Fleiri færslur: Katrín Lilja
Ljósaseríuklúbburinn frá Bókabeitunni – barnabækur í áskrift
Bókaforlagið Bókabeitan hefur komið á fót áskriftarklúbbi fyrir börn. Bækurnar sem Bókabeitan...
Kaldrifjuð morð í Kaupmannahöfn
Fyrir þá sem elska hráslagalegar, kaldar, blóðugar, grimmar og óhugnanlegari glæpasögur með dassi...
Mömmuklúbburinn til bjargar
En þetta er ekki bara saga um sakamál heldur nær Molloy að flétta saman tveimur sögum í eina bók; glæpasögunni eða ráðgátunni um hvarf Mídasar og reynsluheim kvenna sem reyna að fikra sig eftir einstiginu sem samfélagið hefur skapað mæðrum.
Fröken Oliphant
Þegar ég last síðustu setninguna í Allt í himnalagi hjá Eleanor Oliphant hríslaðist um mig hlýja,...
Tilnefningar til barnabókaverðlauna Norðurlandaráðs
Á degi barnabókarinnar, 2. apríl, var tilkynnt um tilnefningar til barnabókaverðlauna...





