Amanda Líf Fritzdóttir er meistaranemi í ritlist við Háskóla Íslands en kláraði fyrir það BA gráðu í samtímadansi í Listaháskóla Íslands og í bókmenntafræði í Háskóla Íslands. Fyrsta ljóðabókin hennar kom út í Covid brjálæði árið 2020 og ber titilinn Arsenik. Hún hefur jafnframt birt texta í Orðskjálfta og Leirburði, tímariti bókmenntafræðinema. Amanda ritstýrði Leirburði skólaárið 2024-5 og tekur við því verkefni aftur 2026-7. Hún elskar hrollvekjur og fagurbókmenntir en ekki síður sviðslistir enda liggur bakgrunnur hennar helst þar.