Guðrún Ágústa Gunnarsdóttir

Guðrún Ágústa Gunnarsdóttir er meistaranemi í almennri bókmenntafræði en hún lauk B.A. náminu með ritlist sem aukagrein. Bækur hafa ávallt skipað stóran sess í lífi hennar og hún man vart eftir sér án þess að vera með nefið niðri í bók. Samhliða ást sinni á bókmenntum hefur tónlist og söngur fylgt henni alla tíð. Guðrún hefur komið víða fram sem söngkona og hefur jafnframt mikinn áhuga á tónsmíðum og raddútsetningum. Hún er meðstofnandi leikfélagsins Fuglabjargs sem setti upp sitt fyrsta frumsamda verk, Hjartað, Hausinn & Helvítið, haustið 2025, en þar var Guðrún einn af höfundum verksins. Hún hefur skrifað þó nokkur sviðsverk og birt texta í Leirburði, tímariti bókmenntafræðinema. Þegar kemur að bókmenntum er Guðrún mikil alæta, þó hún sæki sérstaklega í hrylling, dystópíur, fantasíur og fagurbókmenntir. Inn á milli hefur hún einnig sérstakt dálæti á því að glíma við þung og flókin forn- og miðaldaverk, þó það geti orðið virkilega tímafrekt.

Fleiri færslur: Guðrún Ágústa Gunnarsdóttir