Norrænu goðin og myrkur heimur Ásanna

Fyrir jólin datt í búðirnar bókin Norrænu goðin eftir Johan Egerkrans í íslenskri þýðingu Sigurðar Þórs Salvarssonar. Bókin er bráðfalleg með stórfenglegum, myrkum myndum og sögum úr Völuspá, Grímnismálum, Vafþrúðnismálum og fleiri fornum norrænum handritum. Bókin kom fyrst út í Svíþjóð árið 2016 og fékk góðar viðtökur, að mér sýnist, og hefur verið þýdd á nokkur tungumál.

Ég er mikil áhugakona um norrænu goðin og klæjaði í fingurna eftir að skoða þessa veglegu bók og ég varð alls ekki yfir vonbrigðum. Svo virðist sem áhugi á norrænum goðum, ásatrú og því norræna sé í tísku (og hefur reyndar verið í nokkur ár). Það er eins og fólk á norðurslóðum, rithöfundar, þáttagerðarfólk og kvikmyndafólk sé að blása lífi í þennan áhuga og mér finnst það ótrúlega skemmtilegt.

Í Norrænu goðunum nýtir Egerkrans sér gamlar sagnir og fróðleik og augljóst er að hann hefur kynnt sér efnið vel og vandlega. Hann setur allt saman fram á mjög aðgengilegan hátt. Hann sameinar fróðleik, afþreyingu og norrænan menningararf í skemmtilegum texta. Sigurður Þór hefur svo þýtt textann af snilld og á svo fallegu máli að það var unun að lesa.

Egerkrans er að aðalstarfi myndlistamaður og myndskreytir og svo rithöfundur. Myndirnar í Norrænum goðum eru myrkar og epískar, lýsandi og grípandi og hæfa efninu að mínu mati ótrúlega vel. Norrænu goðin er bók sem ætti að vera til á heimilum þeirra sem hafa áhuga á norrænu goðsögnunum og hjá þeim sem vilja þróa með sér áhuga á því efni, því bókin er virkilega eiguleg.

Það er gleðilegt að sjá nýja útgáfu af sögunum um norrænu goðin koma út á Íslandi. Síðasta útgáfa af þessum sögum á nútímamáli í sambærilegu formi (samkvæmt minni vitneskju, það má alveg leiðrétta mig) er frá 1979, Goð og garpar úr norrænum sögnum. Það er ágæt bók, en er á fremur þvælingslegu tungumáli og höfðar ekki endilega til yngri kynslóða. Norrænu goðin passa aftur á móti öllum aldurshópum. Krakkar geta setið og pælt í myndunum og lesið textana, sem eru sumir snarpir og þægilegir, og þeir geta sökkt sér í lengri sögur. En bókin er líka tilvalin tækifærisgjöf fyrir gamlan frænda eða frænku. Bókin passar öllum!

Lestu þetta næst

Aðferðir til að lifa af

Aðferðir til að lifa af

Gáfaða dýrið er fimmta bók Sæunnar Kjartansdóttur en bókin kom út núna á vormánuðum 2024. Sæunn er...

Verur sem þjást

Verur sem þjást

Dani er venjuleg kona. Hún er komin níu mánuði á leið með dóttur sína Lotte, hún var að flytja...

Aldingarðurinn okkar

Aldingarðurinn okkar

Aldingarðurinn okkar Eden í Tjarnarbíó.  Í Tjarnarbíó hefur salnum verið breytt í náið rými....

Falskur léttleiki

Falskur léttleiki

Eyja er ung kona sem vinnur á fréttamiðli. Hún hefur verið í sambandi síðustu átta árin og býr...

Refarím og kanínukvæði

Refarím og kanínukvæði

Barnabækurnar Sokkarnir hans Rebba og Kanínan vill kúra eru nýlega komnar út í íslenskri þýðingu. Um er að ræða harðspjalda bækur með flipamyndum eftir breska höfundinn Julia Donaldson og hinn þýska myndhöfund Axel Scheffler.