Það eru tólf veðurviðvaranir fyrir næstu tvo daga, á morgun er fimmti mánudagurinn í janúar sem margir munu líklega upplifa sem þann sextugasta. Lægðunum stjórnum við ekki, aðeins því hvernig við bregðumst við. Það er hægt að missa gleðina og verða svekkt yfir því að komast ekki í ferðir landshluta á milli, á gönguskíðin eða í fjallgönguna. Hinn póllinn er bara að gleðjast yfir því að hafa afsökun til að skríða undir teppi með góða bók og kakóbolla, það er hvort eð er ekkert annað hægt að gera! Hér er lægðarleslisti frá nokkrum pennum Lestrarklefans til að fá hugmyndir að góðum bókum til að lesa í lægðinni.
Leslisti Sæunnar: Ævisögur og annað
Janúar hefur verið annarsamur hjá mér og þó ég sé að lesa fimmtu bókina í mánuðinum er hún sú fyrsta sem mér finnst ég hafa notið þess virkilega að lesa þar sem hugurinn var einfaldlega á milljón stöðum í einu við lestur hinna bókanna. Ég er tæplega hálfnuð með An Autobiography ævisögu Agöthu Christie. Glöggir lesendur vita að ég er mikill aðdáandi Christie og hafði ég heyrt mjög góða hluti um ævisögu hennar. Mér fannst fyrri hlutinn smá langdreginn, hún átti hamingjusama æsku og voru frásagnir af ferðalögum fjölskyldunnar og æskuvinum hennar ekki að grípa mig. Hins vegar fannst mér bókin komast á betra flug þegar hún fór að lýsa á mjög skondinn hátt stefnumótasenunni við upphaf 20. aldar í Bretlandi. Þangað sem ég er nú komin í bókinni er fyrri heimsstyrjöldin skollin á og Agatha farin að vinna sem hjúkka (þekking hennar af eitrum frá þessum árum myndi síðar koma henni að gagni við ritun fyrstu glæpasögu hennar) og þau Archie Christie nýgift og ljóst að þetta verður stormasamt hjónaband. Fínasti lestur fyrir aðdáendur Christie fram að þessu.
Ég er komin með ævisögu Nelson Mandela af bókasafninu, Long Walk to Freedom og hlakka mikið til að kynna mér sögu hans sem ég þekki skammarlega lítið til. Ég er nýverið dottin í sjósundið og finnst það mjög gaman, vinkona mín sem ég stunda það með mælti með bók um það hvað sjósund getur breytt lífi fólks The Wildwater Women eftir Ellie Wood. Ég hlustaði á hana á dögunum, en þetta er afar létt en kósý bók um það hvernig líf fjögurra kvenna breytist til hins betra við það að kynnast í gegnum sjósund í Lake District í Bretlandi. Ég náði ekki að lesa eina einustu bók í frábæru áskriftaröð Angústúru sem ég fékk í gegnum póstinn á síðasta ári (ég hafði reyndar lesið Kjörbúðarkonuna áður). Ég ætla því að lesa einhverja af þeim fljótlega og er mjög áhugasöm um Á nóttunni er allt blóð svart eftir David Diop.
Raf- og hljóðbækur frá Katrínu Lilju
Ég er veðurperri og fréttatíminn á stormadögum er oftar en ekki hápunktur vikunnar. En að sama skapi finnst mér fátt betra en að vera inni þegar verstu hríðarnar ganga yfir, hlusta á vindinn rífa í húsið, maula eitthvað gott og sötra heitt te. Og að sjálfsögðu kíkja í bók. En það getur verið erfitt að ná sér í bók í bókabúð þegar stormur geysar úti, því verða mín meðmæli eingöngu bækur sem hægt er að fá sem hljóðbók eða rafbók.
Mér finnst gaman að sökkva mér niður í auðlesanlegt og létt efni þegar janúar og febrúarlægðirnar ganga yfir landið. Því mæli ég með lestri á Arch of the Schythe bókum Neal Shusterman. Hafir þú ekki þegar kynnt þér söguna þá mæli ég sterklega með því. Ef þú vilt láta hræða þig á meðan stormurinn geysar þá mæli ég með hlustun á Dauðaleit eftir Emil Hjörvar Petersen. Ef þú sækir í hasar, vísindaskáldskap með dassi af klisju þá mæli ég með Winter World seríu A.G. Riddle. Ef þú vilt enn meira léttmeti með húmor í bland þá er þér óhætt að kíkja á bækur T. Kingfisher. Af nægu er að taka! Gleðilega lægð!
Meðmæli Sjafnar
Meðmæli Rebekku Sifjar
Hafi engin þessara bóka vakið forvitni þína þá hvetjum við þig til að finna þína fullkomnu lægðarbók. Og deila henni með okkur á samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #Lestrarklefinn eða @lestrarklefinn. Okkur þykir alltaf gaman að heyra frá ykkur. Svo mælum við einnig með að þið skoðið síðuna okkur og finnið næstu bók.