
Þrútið var loft og þungur sjór : frásagnir frá fyrri tíð er nýjasta bók Steinars J. Lúðvíkssonar, sem margir kannast við sem höfund hinnar sívinsælu ritröðar Þrautgóðir á raunastund. Sú sería spannar talsvert mörg bindi og fjallar ítarlega um björgunarsögu Íslands og hetjur hafsins. Steinar hefur í gegnum tíðina getið sér gott orð fyrir að miðla sönnum frásögnum með næmni og virðingu fyrir þeim sem þær lifðu. Í þessari nýjustu bók sinni heldur hann áfram á sömu braut og rekur sögur af sjávarhörmungum og lífsbaráttu við náttúruöflin, nú í sjálfstæðri bók sem spannar nokkrar aldir og margs konar örlög.
Það er ekki víst að áður hafi verið fjallað um bók af þessari tegund hér á Lestrarklefanum – sjálf hef ég alla vega ekki gert það. Ég les aðallega ástarsögur og samtímabókmenntir, en þegar kemur að bókum sem fjalla um mannlegar raunir, þá vaknar í mér sérstakur áhugi. Þó ég hallist frekar að ævisögum einstaklinga og heimildasögum í því samhengi, þá hef ég alltaf haft furðu mikla þrá til að lesa um hörmungar sem gerast á sjó. Það er líklega arfgengur áhugi – faðir minn, sem var alinn upp í litlu sjávarþorpi á Ströndum og varð síðar skipstjóri, hafði nefnilega sama áhugamál. Hann las ekki bækur né horfði á heimildamyndir um raunverulega glæpi (e. true crime) líkt og vinsælt er í dag heldur las hann hörmungasögur tengdar íslenskri sjómennsku – og nú geri ég það líka. Mögulega þarf að sálgreina þetta eitthvað, ég veit það ekki, en aðallega tengist þetta áhuga mínum á lífsreynslu annarra.
Saga, hörmungar og mannlegur styrkur
Í nýjustu bók sinni, Þrútið var loft og þungur sjór : frásagnir frá fyrri tíð, heldur Steinar J. Lúðvíksson áfram að heiðra minningu þeirra sem börðust við hafið. Með sinni einstöku frásagnargáfu dregur hann upp lifandi myndir af hetjum hafsins og því hvernig náttúran hefur alla tíð sett íslensku þjóðinni mörk. Bókin er samansett úr sjálfstæðum köflum þar sem hver kafli er tileinkaður ákveðinni sögu – oft dramatískri, stundum sorglegri, en alltaf mannlegri.
Steinar fer í sumum tilvikum aftur til sextándu aldar, og það er virkilega sérstakt að ímynda sér Ísland og hafið umhverfis það á þeim tíma. Uppáhaldssagan mín í bókinni er án efa sagan af strandi Gautaborgar við Íslandsstrendur snemma á átjándu öld, þar sem 174 menn voru strandaðir hér á landi í marga mánuði. Það var enginn smáræðis fjöldi fyrir litla þjóð á þeim tíma, og áhrifin voru mikil. Slíkar frásagnir eru ekki aðeins áhugaverðar heldur líka lærdómsríkar og minna okkur á hvernig saga landsins okkar og hafsins í kringum það eru óaðskiljanleg.
Fyrir áhugafólk um íslenskan veruleika og sjómennsku
Þeir sem kunna að meta sögur af mannlegum raunveruleika og hörmungum, sérstaklega þær sem gerast á Íslandi og tengjast sjómennsku, ættu að huga að þessari bók. Hún sameinar dramatík, sögu og dýrmætan skilning á því hvað það hefur í raun þýtt að búa á eyju í Norður-Atlantshafi. Þrútið var loft og þungur sjór : frásagnir frá fyrri tíð er bók fyrir alla sem hafa áhuga á hetjum hafsins og óttanum sem fylgir því að horfast í augu við náttúruöflin.