Hlutverkaleikur, skrímsli og svartur húmor

8. maí 2026

Dungeon Crawler Carl kápa

Það var fyrir svona ári síðan eða svo sem ég rakst fyrst á bókina Dungeon Crawler Carl á samfélagsmiðlum. Nokkrir bókaormar byrjuðu að minnast á þessa bók á hinum ýmsu samfélagsmiðlum svo ég las mér aðeins til um hana. Ég komst að því að höfundurinn, Matt Dinniman, hefði fyrst gefið hana út sjálfur á Amazon árið 2020 en hún kom svo út formlega og fékk meiri dreifingu hjá Penguin árið 2024 og fór þá á flug. Bókin er fyrsta bókin í vísindafantasíu (sci-fantasy) og LitRPG bókaseríu. Jújú, þessi setning var torveld lesturs mögulega en það sem ég á við er að hún er blanda af vísindafantasíu skáldskap og LitRPG sem er tegund af bókmenntum þar sem form og kerfi úr hlutverkjaleikjum á borð við Dungeons and Dragons er nýtt.

Hún fjallar um Carl, fyrrverandi starfsmann bandarísku strandgæslunnar og kettinum Princess Donut sem verða í upphafi bókar meðal fárra eftirlifenda þegar eitthvað snargalið geimverufyrirtæki leggur jörðina í rúst til að nýta auðlindir hennar. Til þess að lifa af neyðast þau til að fara niður í risavaxna dýflissu og taka þar þátt í mjög svo klikkuðum leik sem er nokkurs konar raunveruleikaþáttur. Raunveruleikaþáttur sem sendur er út til áhorfenda um alla vetrarbrautina og þar sem þátttakendurnir kallast „Crawlers“ og berjast við skrímsli upp á líf og dauða. Í leiknum þarftu þó ekki að vera bara sterkur og búa yfir ákveðinni herkænsku heldur þarftu líka að afla þér vinsælda meðal áhorfenda til að eiga meiri möguleika á að lifa af. 

Uppskrift að bók fyrir nörda

Fyrst þegar ég las um hvað bókin var þá hugsaði ég með mér, já ókei – ég gæti hugsað mér að lesa þessa. Ég hef jú mikið spilað hlutverkaleiki í gegnum tíðina – bæði Dungeons and Dragons en líka slíka leiki á tölvuformi (MMORPG leikur) eins og EverQuest og World of Warcraft. Þetta gat því verið bók sem höfðaði til mín. En eins og sönnum bókaormi sæmir þá er ég með leslista sem er svo langur að ég mun aldrei ná að klára hann svo það leið smá tími þar til ég ákvað loksins að láta slag standa. Ég náði mér í bókina á bókasafninu því auðvitað átti Borgarbókasafn eintak og hóf lestur og ég las. 

Ég las og ég las. Þessi bók er hreint út sagt stórkostleg. Hún er stórkostlega spennandi, svo spennandi að ég átti erfitt með að leggja hana frá mér. En svo er hún svo mikill nördaskapur! 

** Varúð – nú koma enskuslettur og leikjalingó **

Að lesa bókina er eins og að vera að spila MMORPG leik við lestur. Þú lest hvað Carl gerir, hvernig hann tekur til í inventory’inum sínum og skoðar stats á hlutum og sjálfum sér. Þau spá í charisma, strength, dexterity og svo framvegis. Já, mér leið bara eins og ég væri að spila tölvuleik í hausnum á meðan ég las. Þetta kítlaði þann nördahluta í mér sem hefur spilað svona leiki í 35 ár eða svo (úff!) en svo er söguþráðurinn svo skemmtilegur. Hann er sambland af svörtum húmor, hasar, ádeilu á afþreyingariðnað og kapítalisma, fyndnar vísanir í dægurmenningu okkar á akkúrat réttum stöðum – allt þetta og svo talandi köttur sem er að sjálfsögðu ofdekraður og snobbaður. 

Þessi bók minnti mig smávegis á Discworld Terry Pratchetts. Heimarnir eru vissulega ólíkir en mér fannst ég finna líkindi með stemningunni og húmornum. Ég er mjög spennt að lesa næstu bækur og í rauninni verð ég eiginlega að eignast þessar bækur. Get eiginlega ekki annað en ég hef það fyrir reglu að taka bækur á bókasafninu ef ég get og kaupa þær ef mér finnst þær góðar. 

En kæri lesandi. Ef í þér blundar nörd. Ef þú fílar fantasíu bókmenntir eða ef þú hefur alltaf ætlað að prófa að lesa fantasíu bókmenntir. Eða ef þú hefur spilað hlutverkaleiki einhverntímann á lífsleiðinni. Eða bara ef þú fílar svartan húmor. Og ketti! Þá þarftu að lesa þessa bók og gera ráð fyrir að þú hafir nægan tíma til að lesa. Þú munt ekki sleppa bókinni nema með því að beita sjálft þig hörku. You have been warned! 

Lestu þetta næst

Átakanlegir endurfundir

Átakanlegir endurfundir

Allt minnir á þig, eða Reminders of Him, er sjöunda bók bandaríska rithöfundarins Colleen Hoover...

Allt er stríð

Allt er stríð

Ég, Jóhanna, er íslenskun á breska verkinu I, Joan og er eftir leikskáldið Charlie Josephine....

Þroskasaga konu og kattar

Þroskasaga konu og kattar

Kötturinn og ég er fyrsta verkið sem Brynhildur Jenný Bjarnadóttir bæði skrifar og myndlýsir...