Taðskegglingar sameinist

8. júní 2026

Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir hefur grínast og teiknað sig inn í hjörtu landsmanna með margvíslegum listaverkum, en hún er sennilega þekktust fyrir sinn knappa stíl í myndasögurm um mislukkulegt fólk með bleik nef sem barma sér yfir heimsmálunum eða hversdeginum, ef ekki hvoru tveggja í bland.

Fnæs er á sinn hátt sjálfstætt framhald bókarinnar Dæs, sem kom út árið 2021, og í henni er að finna safn slíkra myndasagna eftir Lóu. Bókin er þykk og vegleg og ofsalega fallega hönnuð. Hún mun bæði sóma sem stofustáss og skemmtilesefni, sem og auðvitað eitthvað að fletta í gegn um í vandræðalegum kaffiboðum hjá fólki sem á hana en er ekki gott í samræðulist.

Málfrelsi og skrítlur

Persónur Lóu eru bæði við öll og líka allir hinir. Það eru bugaðar mæður og enn bugaðri afkvæmi, furðulegheit og áðurnefndur hversdagur, stjórnmál, heimsmál, hamfarir, hlýnun jarðar og kulnun sálarinnar. Ég hló nokkrum sinnum upphátt við lestur bókarinnar og þá sérstaklega að skrítlunni sem gefur þessari umfjöllun nafn sitt, þar sem maður á þrítugs- eða fertugsaldri biður eldri konu að hætta að kalla sig taðskeggling en sú gamla spyr að bragði hvort hans kynslóð sé ekki svo hrifin af málfrelsinu.

Heildstætt myndlistaverk

Litavalið í bókinni er mjög fallegt og pallettan vel afmörkuð svo úr verður mjög heildstætt verk. Myndlýsingarnar eru auðvitað meira en hálf sagan í svona myndlistaverki, og tekst Lóu mjög vel upp með að bæði halda öllum teikningum í stíl sem sýnir hver höfundurinn er og að festa sig ekki um of í forminu. Bókin er kaflaskipt á þann hátt að stíllinn fær tækifæri til að breytast og þróast, enda myndirnar teiknaðar á einhverjum árum, án þess að skilin trufli lesanda.

Nú er hætta á að segja of mikið, en það er algerlega óþarfi að tala meira um innihaldið eða útlitið. Á heildina er þetta frábær bók, falleg og eiguleg, vönduð og augljóslega unnin af ástríðu og listfengi. Allir aðdáendur Lóu verða ánægðir með þessa bók, og þeir sem þekkja ekki enn til hennar verða örugglega líka kátir að kíkja í hana. 

Lestu þetta næst

Í hugarheimi Hinriks

Í hugarheimi Hinriks

    Vetrarþrestir er nýjasta skáldsaga Bennýjar Sifjar Ísleifsdóttur og kom hún út á...