Díana Sjöfn Jóhannsdóttir gaf út ljóðabók sína Mamma þarf að sofa í lok maí. Áður hefur Díana gefið út nóvelluna Ólyfjan. Einnig hefur hún gefið út ljóðabókina FREYJA í seríu Meðgönguljóða. Díana Sjöfn er líka einn af pennum Lestrarklefans.
Sakleysi æskunnar
Ljóðabókin Mamma þarf að sofa er ljúfsár frásögn konu og móður. Bókin er þrískipt í kaflana „Móðureign“, „Móðurlát“ og „Móðurgerð“. Í fyrsta kafla kynnist lesandi ungri stúlku og tengslum hennar við móður hennar. Kaflinn lyktar af vöfflum með rjóma og nostalgíu. Móðurleg umhyggja og ást streyma yfir til lesandans og barnslegt sakleysi ljóðmælanda talar sterkt til mín og vekur verndartilfinningu. Kaflinn er innilegur og fallegur en lesandinn finnur að ógn vofir yfir. Eitthvað mun rjúfa sakleysi æskunnar.
Móðurlát
Í næsta kafla fellur himinninn og sorgin ríkir og ljóðmælandi varpar sprengjunni strax í byrjun kaflans.
þeir segja mér að lífhimnan umlyki kviðarhol
og öll líffæri
meinmyndun í myrkrinu lá
horfurnar litlar
(Bls. 29)
Ljóðmælandi kallar eftir minningum um móður, sem ekki eru um síðustu andartökin heldur fremur um það sem skiptir máli. En áföll gleymast ekki og þau sækja á. Minningarnar eru margar ljúfsárar og aðrar hreinlega sársaukafullar og kalla fram tár á hvarmi. Inni í okkur flestum býr löngunin eftir að þóknast foreldrum okkar, að gera þau stolt. Ljóðmælandi óskar eftir því að móðirin fylgist með að ofan og spyr hvort hún sé stolt. Er það hún sem fylgist með, er hún hlýjan sem fylgir henni?
Ljóðin eru afhjúpandi en mjúk og blíð og full af væntumþykju
Ég er stundum hrædd mamma
stressuð og svo þreytt
ég held ég skilji þig betur núna
finnst ég aldrei gera nóg
en
þegar hún hlær
þá lyftist hjarta mitt í þyngdarlausa gleði
(Bls. 85)
Ljóðabókin talaði sterkt til mín. Með blíðu sinni og angurværð í fyrsta hluta minnti hún mig á mína eigin móður. Í miðið blossaði sorgin upp og samkenndin syrgði með ljóðmælanda. Í lokin endurupplifði ég æsku minna eigin barna, erfiðleikana sem fylgja barnauppeldi en jafnframt gleðina og lísfyllinguna sem fylgir uppeldishlutverkinu.