Léttar bækur og ungir lestrarhestar

27. febrúar 2018

heyrdu-jonsiBækurnar um Jónsa og Binnu B. Bjarna eru tilvaldar fyrir krakka sem eru tilbúin í aðeins flóknari lestur en „Ís“ og „Sísí sá ás“.

Í bókunum fylgjast krakkarnir með Jónsa eða Binnu. Jónsi og Binna glíma við ýmis vandamál og erfiðleika í hverri bók. Erfiðleikarnir eru allt frá kvíða yfir í siðferðilegar spurningar eins og hvort það sé í lagi að segja ýkjusögur eða skröksögur. Með hverri bók er því hægt að taka með sér einhvern lærdóm.

Bækurnar eru skrifaðar af Sally Rippin, áströlskum barnabókahöfundi og teiknara. Hún hefur slegið rækilega í gegn með bókunum um Binnu og Jónsa. Bækurnar eru með stóru letri og henta því yngstu lestrarhestunum. Bækurnar henta börnum á aldrinum 6-8 ára.

Lestu þetta næst

Hvað er húð?

Hvað er húð?

Gæðablóð er sjálfsævisögulegt verk samið og flutt af þeim Davíð Þór Katrínarsyni, Jónmundi...

Alfa svíkur engan

Alfa svíkur engan

Alfa eftir Lilju Sigurðardóttur er ekki glæpasaga eftir hefðbundnu sniði, en hún fjallar þó á...

Lokkandi rós og dramatík

Lokkandi rós og dramatík

Kammeróperan setur á svið óperuna Carmen eftir franska tónskáldið Georges Bizet í Tjarnarbíó....