Kynntu þér höfunda Queer Situations

27. apríl 2026

Dagana 14. – 17. maí nk. verður alþjóðlega hinsegin bókmenntahátíðin Queer Situations haldin í annað sinn. Erlendir gestir hátíðarinnar hafa verið tilkynntir en þeir koma frá Bandaríkjunum, Spáni, Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Færeyjum að þessu sinni. Nú þegar styttist í hátíðina er tilvalið að kynna sér verk gestanna.

Fimmtudaginn 30. apríl nk. verður einnig upphitunarviðburður haldinn á SKÝ bar. Sýnisbók með íslenskum þýðingum á brotum úr verkum höfunda sem verða gestir hátíðarinnar í ár verður gefin út. Lay Low og Álfgrímur flytja tónlistaratriði. Viðburðurinn hefst kl. 20:00 og er opinn öllum. Aðgengi er fyrir hjólastóla. Miðasala á hátíðina er hafin á tix.is.

Við bendum einnig á að hægt er að hlusta á viðtal í Hlaðvarpi Lestrarklefans við stofnendur hátíðarinnar, Evu Rún Snorradóttur og Höllu Þórlaugu Óskarsdóttur.

 

Bad Habit eftir Alana S. Portero

Bad Habit (La mala costumbre) er fyrsta skáldsaga spænska höfundarins Alönu S. Portero. Bókin er uppvaxtarsaga ungrar trans stúlku sem elst upp í verkamannahverfi í Madrid á 8. og 9. áratugnum, tímabil þegar Spánn er að taka stakkaskiptum eftir stjórnartíð Franco. Hún er átakanleg lýsing á þeim árum sem aðalpersónan er í leit að sjálfri sér í umhverfi þar sem hún fær ekki að blómstra. Inn á milli leynist þó fegurð – jafnvel á óvæntum stöðum – og eru sambönd stúlkunnar við eldri trans konur og annað hinsegin fólk þar í forgrunni. Á fallegan og áhrifaríkan hátt fléttar höfundur inn vísunum í gyðjur ýmissa goðsagna og úr verður sannkölluð kvennasaga.

In the Dream House eftir Carmen Maria Machado

In the Dream House eru endurminningar Carmen Maria Machado þar sem hún fjallar um upplifun sína af ofbeldissambandi með annarri konu. Bókin hefur vakið mikla athygli þar sem hún fjallar opinskátt um ofbeldi í samkynja sambandi en eins og höfundur minnist á hefur lítið verið skrifað um það málefni í gegnum tíðina. Höfundur brýtur upp endurminningaformið með notkun á ýmsum frásagnarminnum ásamt því að vísa í þjóðsögur, hrollvekjur og aðrar bókmenntagreinar. Útkoman er átakanlegur vitnisburður sem situr eftir í lesendum.

 

Tolk eftir Lee Langvad

Tolk er sjálfsævisöguleg skáldsaga eftir danska höfundinn Lee Langvad. Bókin gerist á fimm ára tímabili þar sem aðalpersónan ferðast reglulega til Suður-Kóreu að hitta blóðfjölskylduna sína en hún var ættleidd til Danmerkur frá Suður-Kóreu sem ungabarn. Aðalpersónan talar ekki kóresku og þar sem kóreska fjölskyldan hennar talar hvorki dönsku né ensku þurfa þau að eiga samskipti með aðstoð túlks. Fjölskyldan hennar veit hins vegar ekki að hún er lesbía og að túlkurinn er kærastan hennar. Með bókinni fjallar Langvad á áhugaverðan hátt um tungumálaörðugleika, hinseginleika og hvernig það er að upplifa sig utangarðs.

 

Sólgarðurinn eftir Beinir Bergsson

Sólgarðurinn (Sólgarðurin) er önnur ljóðabók færeyska ljóðskáldsins Beinis Bergssonar. Bókin er tímamótaverk í færeyskri bókmenntasögu þar sem hún er fyrsta opinskáa hinsegin ljóðabók Færeyja en hún fjallar um ástarsamband tveggja manna. Í ljóðunum eru mannslíkaminn, náttúran og nánd í brennidepli. Sögusviðið er annars vegar garður og hins vegar svefnherbergi en þessi rými renna saman í eitt. Náttúran og líkaminn gera slíkt hið sama þar sem mörk eru ítrekað teygð eða máð út í ljóðunum. Sólgarðurinn hlaut tilnefningu til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2022 og kom hún út í íslenskri þýðingu Guðrúnar Brjánsdóttur ári seinna.

 

Lesbianism in Swedish Literature: An Ambiguous Affair eftir Jenny Björklund

Jenny Björklund er prófessor í bókmenntum og kynjafræði við Háskólann í Uppsala í Svíþjóð. Í bókinni Lesbianism in Swedish Literature: An Ambiguous Affair skoðar hún lesbískar birtingarmyndir og þróun þeirra í sænskum bókmenntum yfir 75 ára tímabil. Hin almenna hugmynd um að viðhorf til samkhynhneigðar hafi batnað með tímanum er ríkjandi í sænsku samfélagi. Í bókinni grannskoðar Björklund þessa hugmynd og bendir á að ýmislegt í sænskum bókmenntum og bókmenntaumræðu sem viðkemur lesbískum birtingarmyndum er í ósamræmi við hugmyndina.

 

IGGY eftir Edy Poppy

Hjónin Edy Poppy og Julian Blaue munu flytja sviðsverkið The Reality Hits Back (Virkeligheten slår tilbake) á hátíðinni. Verkið byggir á skáldsögunni IGGY eftir Edy Poppy. Bókin er sjálfsævisöguleg skáldsaga um konu sem fer í þungunarrof á unga aldri. Hún sér síðar eftir þeirri ákvörðun og ófædda barnið, sem konan kallar Iggy, fylgir henni alla tíð. Bókin er ítarleg skoðun á ástinni, listamannalífinu, móðurhlutverkinu og tengslanna þar á milli.

Lestu þetta næst

Hvar eru þessar sprungur?

Hvar eru þessar sprungur?

Fuglamál er fyrsta skáldsaga myndlistarkonunnar Mörtu Maríu Jónsdóttur og kom út á dögunum hjá...

Dauðinn er líka líf

Dauðinn er líka líf

Í fyrra kom út barnabókin Hjartslátturinn hennar Lóu eftir mæðgurnar Lilju Cardew og Kristínu...

Er lífið kátur Kabarett?

Er lífið kátur Kabarett?

Já, svo virðist vera. Í það minnsta er það veruleikinn inni í Þjóðleikhúskjallaranum sem hefur...

Taðskegglingar sameinist

Taðskegglingar sameinist

Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir hefur grínast og teiknað sig inn í hjörtu landsmanna með margvíslegum...

Heilun listamannsins

Heilun listamannsins

The Artist's Way kom fyrst út í Bandaríkjunum árið 1992 og markaði upphafið að „The Artist's Way"...

Allt það sem koma skal

Allt það sem koma skal

Ljóðsagan Í hæfilegu magni er annað útgefið verk höfundarins Heiðu Vigdísar Sigfúsdóttur og kom út...