Hin fullkomna útilegubók

22. júlí 2026

Allt sem við hefðum getað orðið

Júlímánuður er vinsælasti útilegutími ársins hér á landi, skiljanlega, hitastigið getur farið upp í tveggja stafa tölu og suma daga rignir barasta ekki neitt. Eins og margir góðir Íslendingar nýtti ég einn góðviðrisdag til að skella mér í tjaldútilegu og tók bókina sem ég er um þessar mundir að lesa með í för. Ég er bara ekki frá því að þetta sé hin fullkomna útilegubók.

At Home: A Short History of Private Life (2010) er skrifuð af hinum dásamlega penna Bill Bryson, sem er fæddur í Bandaríkjunum, en hefur lengst af búið í Bretlandi og er klárlega með mun breskari ritstíl. Í bókinni er stiklað á stóru um sögu daglegs lífs og man verður heldur betur fróðari eftir lestur!

 

Saga prestbústaðsins 

Bill Bryson hefur skrifað fjölda bóka en meðal þeirra þekktustu eru A Short History of Nearly Everything þar sem hann stiklar á stóru um vísindi, og Notes from a Small Island ein af bestu bókum sem hefur verið skrifuð um Bretland. At Home kom út árið 2010, í henni fer Bryson í ferðalag um hús sitt í Bretlandi, gamlan prestbústað eða rectory og tekur fyrir hvert herbergi fyrir sig. Í hverju herbergi talar hann um sögu hluta sem tengjast því herbergi, til dæmis hvernig við enduðum með salt og pipar á hverju borðstofuborði, og með því sögu daglegs lífs fólks í gegnum mannkynssöguna. Það er misjafnt hversu langt út fyrir efnið hann fer í hverjum kafla, til dæmis fjallar hann ítarlega um mýs og rottur og rottugang í kaflanum um The Study eða skrifstofuna, þó eina tengingin við skrifstofuna er að hann er með músagildrur inni í því herbergi heima hjá sér.

 

Hin fullkomni ferðafélagi 

Líkt og í öllum bókum Bryson er hér að finna hafsjó af fróðleik. Það er svo ótrúlega mikið af skemmtilegum, og oft tilgangslausum staðreyndum í þessari bók sem man getur skemmt sér endalaust yfir við lestur. Ástæða þess að bókin er frábær ferðafélagi er að það er hægt að grípa í hana hvenær sem er í útilegum, til dæmis þegar börn fara óvænt í tvo klukkutíma á trampólín á tjaldstæðinu og manni bókstaflega leiðist, eða þegar allir eru sofnaðir og það er púki í manni að vilja sitja úti í íslensku miðnætursólinni aðeins lengur að lesa. Svo er hægt að fjárfesta í búnaði eins og Hvísl* og taka bókina með inn í tjald og lesa þó það séu myrkvunartjöld inni í tjaldinu.  

 

Skrifstofan og svefnherbergið  

Ég hafði gaman af hverjum einasta kafla í bókinni, hverjum á sinn hátt, en verð að draga fram tvo sem ég hafði sérstaka ánægju af og mæli jafnvel með upplestri úr fyrir ferðafélagana. Það er annars vegar kaflinn um skrifstofuna vegna skrítna útúrdúrsins um rottur. Þar kom meðal annars fram að rottur sofa allt að tuttugu klukkustundir á dag en meðan þær eru vakandi stunda þær kynlíf allt að 20 sinnum á dag, eða á 12 mínútna fresti. Þetta er fánýttur fróðleikur sem mun koma sér heldur betur vel! Hinn kaflinn var kaflinn um svefnherbergið, The Bedroom, ekki út af ástæðunni sem þið haldið. Heldur vegna ótrúlegra frásagna af líkstuldi til að efla læknisfræðimenntun. 

Ég gæti lengi haldið áfram að tala um fyndnar sögur úr bókinni en mæli þess í stað frekar með að lesa hana, eða hlusta á hljóðbókina, sem er líka góður ferðafélagi þegar farið er yfir langan veg.

*Þessi færsla er engann veginn spons fyrir Hvísl ég er bara svo geggjað ánægður viðskiptavinur.

Lestu þetta næst

Í hugarheimi Hinriks

Í hugarheimi Hinriks

    Vetrarþrestir er nýjasta skáldsaga Bennýjar Sifjar Ísleifsdóttur og kom hún út á...