Er íslenskur glæpasagnamarkaður ofmettaður af skandinavískum glæpasögum? Hvað finnst...
Katrín Lilja
Katrín er sagnfræðingur og blaðakona sem hefur frá unga aldri setið með nefið ofan í bók. Það var henni eðlislægt. Hún trúði því að jafnaldrar hennar hefðu sömu hneigingu til bóka og það var ekki fyrr en á sextánda aldursári sem hún gerði sér grein fyrir að ef til vill var lesturinn ekki eins eðlislægur öðrum í kringum hana.
Þá vöknuðu spurningar um það hvort það þætti eðlilegt að ganga með bækur á sér hvert sem var farið. Hvort það væri eðlilegt að vera með bók innanklæða eða í veskinu öllum stundum? Þegar þessar vangaveltur spruttu upp gekk hún með Góða dátann Svejk innanklæða á skólasetningarathöfn Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi. Góði dátinn var innbundin bók og fremur óhentug innanklæða.
Yndislestri hrakaði ört næstu árin, samfara meiri lestri á skólabókum. En nú er skólagöngu loksins lokið og yndislesturinn óðum að hefjast aftur eftir langan dvala. Katrín les mikið af barna- og ungmennabókum enda er lesið fyrir börnin á hverju kvöldi. Einnig slæðist ein og ein skáldsaga inn á milli.
Katrín er búsett á Akranesi ásamt þremur sonum, tveimur köttum og einum eiginmanni. Hún vinnur sem lausablaðamaður og sinnir eigin verkefnum í frítíma sínum ásamt því að lesa og skrifa um bækur.
Fleiri færslur: Katrín Lilja
Rithöfundar vs. útgefendur á bókmenntahátíð
"Það er gaman að fá útrás í sporti og merkilegt hve margir höfundar landsins voru til í að taka...
Ian McEwan hlaut bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness
Í dag voru bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness afhent í fyrsta sinn. Katrín Jakobsdóttir,...
Hildur hlaut hnossið fyrir Ljónið
Hildur Knútsdóttir hlaut í gær Barnabókaverðlaun Reykjavíkur fyrir bókina Ljónið. Borgarstjóri...
Börnin hafa tilnefnt sínar uppáhaldsbækur!
Í gær var tilkynnt um Bókaverðlaun barnanna á Borgargókasafninu. Árlega tilnefna börn þær bækur...
„Með Hnubba Lubba frá Rjómabúi Stubba“
Á mínu heimili hafa barnabækur í bundnu máli alltaf notið mikilla vinsælda. Það er eitthvað við...





