Rétt eins og hja yngri börnum, þá getur verið erfitt að finna lesefni fyrir krakka á miðstigi í skóla. Þetta er aldurinn sem flestir krakkar, sem yfir höfuð hafa áhuga á því að lesa, eru farnir að lesa sér til gamans. Þess vegna eru sögurnar orðnar flóknari, textinn lengri og bækurnar þykkari. Þetta er skeiðið í lífi þeirra þar sem þau virkilega uppgötva töfra lesturs og fara hægt og rólega að uppgötva alla ævintýraheimana sem bíða þeirra á næsta bókasafni.
Lestrarklefinn fékk bókasafnsfræðing í grunnskóla til að leggja til nokkrar bækur sem hafa verið vinsælar hjá börnum á miðstigi. Listinn er langt frá því að vera tæmandi, en gæti gefið mömmum, pöbbum, ömmum, öfum, frænkum og frændum einhverja hugmynd um hvað er gott að velja fyrir ungan lestrarhesta.
![Dagbók-Kidda-Flóttinn-í-sólina_kapa_minni-1035x1536](https://lestrarklefinn.is/wp-content/uploads/2020/05/Dagbók-Kidda-Flóttinn-í-sólina_kapa_minni-1035x1536.jpeg)
Bækurnar um Kidda klaufa eftir Jeff Kinney hafa verið gríðarlega vinsælar hjá börnum á miðstigi lengi. Þær eru ríkulega myndskreyttar með spýtukallateikningum og svo skemmtilegar. Frásögnin er í dagbókarformi þar sem lesandi er í raun að lesa Dagbók Kidda klaufa. Bækurnar hafa verið kvikmyndaðar.
![Leyndarmál-Lindu](https://lestrarklefinn.is/wp-content/uploads/2018/09/Leyndarmál-Lindu.jpg)
Sambærilegar bækur við Kidda klaufa eru Leyndarmál Lindu eftir Rachel Renée Russell. Ríkulega myndskreyttar og sagt frá lífí Lindu í dagbókarformi.
![VitiIVestmannaeyjum](https://lestrarklefinn.is/wp-content/uploads/2018/09/VitiIVestmannaeyjum.jpg)
Fótboltabækur Gunnars Helgasonar hafa slegið í gegn svo um munar. Vítí í Vestmanneyjum er orðin að bæði bíómynd og sjónvarpsþáttum. Bækurnar um Jón Jónsson og félaga hans í knattspyrnunni, Aukaspyrna á Akureyri, Rangstæður í Reykjavík og Gula spjaldið í Gautaborg, halda áfram að heilla unga lesendur.
![Seidf4](https://lestrarklefinn.is/wp-content/uploads/2018/09/Seidf4.png)
Sagan um Seiðfólkið eftir Jo Salmson og Nataliu Batista er fjögurra bóka sería sem hlaut Norrændu barnabókaverðlaunin. Bækurnar henta einnig lesendum niður í sjö ára aldur.
![baekur_Doddi](https://lestrarklefinn.is/wp-content/uploads/2018/09/baekur_Doddi.jpg)
Bækurnar um Dodda, Doddi: Bók sannleikans! og Doddi: Ekkert rugl eftir Hildi Knútsdóttur og Þórdísi Gísladóttur ná líka á vinsældarlista barnanna. Þær segja frá Dodda, sem hefur brennandi áhuga á skordýrum og lífi hans.
![Strákurinn-í-kjólnum-kápa-600x891](https://lestrarklefinn.is/wp-content/uploads/2018/09/Strákurinn-í-kjólnum-kápa-600x891.jpg)
David Walliams hefur gefið út fjölda bóka og svo virðist sem hann haldi endalaust áfram. Bækurnar hafa verið kvikmyndaðar – Strákurinn í kjólnum varð að bíómynd til dæmis. Hann hefur líka skrifað Amma glæpon, Rottuborgarinn og Grimmi tannlæknirinn svo fátt eitt sé nefnt.
![MammaKlikk-643x1024](https://lestrarklefinn.is/wp-content/uploads/2019/01/MammaKlikk-643x1024.jpg)
Gunnar Helgason er einn af okkar ástsælustu höfundum. Serían hans um Stellu – Amma best, Pabbi prófessor og Mamma klikk og fleiri bækur – ná auðveldlega á vinsældarlistann hjá ungu fólki á miðstigi í skóla.
![Þinn eigin tölvuleikur - Kápa (3)](https://lestrarklefinn.is/wp-content/uploads/2019/10/Þinn-eigin-tölvuleikur-Kápa-3.jpg)
Ævar Þór Benediktsson hefur sent frá sér fjölda bóka fyrir börn og hefur líka unnið ótrúlegt starf í þágu lestrarkunnáttu íslenskra barna. Bækurnar um bernskubrek Ævars visindamanns; t.d. Risaeðlur í Reykjavík, Vélmennaárásin, Gestir utan úr geimnum og Ofurhetjuvíddin eru stórskemmtilegar. Þín eigin serían gæti líka auðveldlega slegið í gegn.
![Kepler1_preview](https://lestrarklefinn.is/wp-content/uploads/2018/09/Kepler1_preview.png)
Kepler 62 eftir Bjørn Sortland og Pasi Pitkänen er vísindaskáldsaga í sex hlutum fyrir börn. Sagan er framhaldssaga, ríkulega myndskreytt og mjög grípandi og spennandi.