Vetrargulrætur hlutu Sparibollann

Í gær hlaut Ragna Sigurðardóttir Sparibollann – verðlaun fyrir fegurstu ástarjátninguna fyrir smásagnasafnið sitt Vetrargulrætur. Veðrið setti nokkuð strik í reikninginn, gul viðvörun og vegir lokaðir, og færri komust á afhendinguna en vildu. Til dæmis komst Ragna sjálf ekki á viðburðinn til að taka við verðlaununum. Viðburðinum var þó streymt á FB frá Tryggvaskála.

Í umsögn dómnefndar um Vetrargulrætur segir:

Í Vetrargulrótum er ekki bara ein góð ástarjátning heldur er bókin sjálf ein samfelld ástarjátning til lífsins, fegurðar og sköpunar og litapallettu jarðarinnar. Þar er að finna ást í ólíkum formum og að lestri loknum situr eitthvað eftir innra með manni, hún skilur eftir ást í hjartanu.
Í bókinni er líf og litir og hvatning til allra þeirra sem vilja skapa og skrifa, og eins og Ragna sagði sjálf við verðlaunaafhendinguna, þá er það ástin á bókunum sem knýr okkur áfram.

Þetta er í fyrsta sinn sem Sparibollinn er veittur. Von er til að veiting Sparibollans verði árlegur viðburður, með það að leiðarljósi að vekja athygli á ást í bókum og í heiminum í kringum okkur. Lestrarklefinn óskar Rögnu til hamingju með verðlaunin. Hér er hægt að sjá aðra tilnefnda.

Lestu þetta næst

Er þetta gaman?

Er þetta gaman?

Er þetta gaman?  Félagsskapur með sjálfum mér í Tjarnarbíó Á sviðinu er legubekkur, örfáar bækur,...

Sögur til næsta bæjar

Sögur til næsta bæjar

Sagnagerð er lúmsk kúnst sem þarf að rækta. Í janúar kom saman hópur af upprennandi höfundum í...