Gáskafull þeysireið Friðsemdar

Fyrsta skáldsaga Brynju Hjálmsdóttur er nú komin út og ber heitið Friðsemd. Brynja er þekkt fyrir ljóðabækurnar Kona lítur við og Okfruman, sem báðar fengu góðar undirtektir. Því hélt undirrituð að hér væri um að ræða ljóðræna og upphafna skáldsögu en innihaldið kom aldeilis á óvart.

Friðsemd fjallar um samnefnda konu, hún er einfari og eyðir tíma sínum að lesa yfir og ritstýra glæpasögum um hina kynþokkafullu Advokat Larsen. Höfundur þessa vinsælu bóka er besta vinkona Friðsemdar, Fatima Bergkjær, sem er allt sem Friðsemd er ekki. Fatima er geislandi, hæfileikarík ævintýrakona sem dregur fólk að sér. Í upphafi bókar fellur Fatima fyrir björg sem veltur af stað furðulegri og gáskafullri atburðarrás þar sem hin rólega og hógværa Friðsemd verður að djörfum og hugrökkum spæjara.

Skáldsagan er framtíðarsaga, hún gerist á Íslandi sem við myndum ekki kannast við. Stór partur Suðurlandsins hefur sokkið undir sjó og fólk flúið upp í fjöllin. Þetta kalla íslendingar nú Glataða landið. Meginpartur bókarinnar á sér stað í endurbyggðri Hveragerði þar sem stórfyrirtækið SELÍS starfar undir tryggri stjórn frumkvöðulsins Eldbergs Salmans Atlasonar. Umhverfið er því frekar ævintýralegt og í ætt við vísindaskáldskap þó að söguþráðurinn fléttist saman eins og gamalkunnur reifari. 

„Ljóst var og hafði verið ljóst um langt skeið, að veröldin væri að farast. Jörðin var að drukkna í sorpi og óæskilegum lofttegundum, algjörlega að kafna undan frekjunni í mönnunum, og vegna hækkunar sjávar var land, Ísland þar með talið, óðum að hverfa í hafið.“ (úr 4. kafla)

Friðsemd í sannleiksleit

Bókin er fremur ærslafull og kómísk, þá sérstaklega lýsingarnar af glæpasögunum um Advokat Larsen, en reglulega fær lesandinn innsýn inn í söguþræði bókanna sem urðu, að mig minnir, tíu talsins áður en Fatima mætti endalokum sínum. Friðsemd er einstaklega skemmtileg persóna sem gaman er að fylgjast með, eldri kona sem loksins missir allar hömlur og berst fyrir sannleikanum og réttlætinu. Bókin er uppfull af fleiri skondnum persónum, þar á meðal er þjónustuviðmótið Eintak Sandvík, óþekkt og sjálfumglatt vélmenni, sem kemur þó Friðsemd nokkrum sinnum til hjálpar. Friðsemd finnur einnig hjálparhellu í hinni bandarísku Olive sem starfar sem húsvörður hjá SELÍS. Hún talar einkar góða íslensku en á þó til að orða hlutina á broslegan hátt.

 

Farsakenndur tónn

Undir litríku yfirborði verksins má auðvitað finna alvarlegri þemu, ádeilu á hamfarahlýnun og græðgi stórfyrirtækja, en einnig áleitnari hugðarefni eins og vináttuna og sáran missi. Öllu þessu er svo pakkað inn í skrautlegar og skrípalegar umbúðir. Þessi farsakenndi tónn heldur sér í gegnum allt verkið og er útkoman einstaklega ánægjuleg.

Friðsemd fannst mér stórskemmtilegur lestur, hún kom mér svo sannarlega á óvart. Ef þið viljið lesa eitthvað ferskt, hæðið og gamansamt verðið þið ekki fyrir vonbrigðum.

 

Lestu þetta næst

Eins konar dans

Eins konar dans

Moldin heit er önnur skáldsaga Birgittu Bjargar Guðmarsdóttur en fyrir hana hlaut hún...