Bestu bókabúðirnar í Stokkhólmi

12. mars 2026

Stokkhólmur er ein fallegasta borg Norðurlandanna, hún einkennist af fallegum gömlum byggingum og vatni alltumlykjandi. Á hverju götuhorni er hægt að stinga sér inn á kósý kaffihús með kertaljós á borðum og bragða á fika t.d. góðum kanil- eða kardimommusnúðum með rjúkandi heitu kaffi. Það er óhætt að mæla með ferð til Stokkhólms þegar fer að vora, sólin skín og hægt er að njóta þess að sigla um borgina og ganga í Kungsträdgården og dást þar að kirsuberjatrjánum. En aðal atriðið í borgarferð er að sjálfsögðu bókabúðirnar. Útsendari Lestrarklefans í Stokkhólmi mælir sérstaklega með þessum bókabúðum, þó að listinn sé að sjálfsögðu ekki tæmandi!

Söderbokhandeln Hansson & Bruce

Notaleg jazz tónlist tekur á móti vegfarendum þegar þeir opna hurðina á þessari huggulegu bókabúð á göngugötunni Götgötunni í Södermalm. Þessi bókabúð er af mörgum talin ein sú allra fallegasta og besta í Stokkhólmi. Þetta er sjálfstæð bókabúð sem hefur verið á sama stað í rétt tæpa öld, eða síðan árið 1927. Bókabúðin er þekkt fyrir kósý og gamaladags stíl. Þar er að finna fjölda bóka á fjölbreyttum sviðum og mjög gott úrval af bókum á ensku.

Söderbokhandeln

The English Bookshop

Þessi bókabúð var sú fyrsta sem ég heimsótti í Stokkhólmi og er líkt og Söderbokhandeln í Södermalm hverfinu (margar bókabúðir á listanum eru það sökum þess að útsendarinn er tímabundið búsettur þar). Eins og titillinn gefur til kynna selur bókabúðin enskar bækur. Einhverjir lesendur Lestrarklefans geta eflaust lesið sænskar bækur en það er alltaf gagnlegt fyrir ferðamenn að geta farið í bókabúð erlendis og átt greiðan aðgang að fjölbreyttum titlum á ensku. Bókabúðin er frekar lítil og þröng, en þar er bæði að finna klassískar bókmenntir, nýja titla og barnabækur.
enska bókabúðin stokkhólmi
Rönnells stokkhólmi

Rönnells Antikvariat

Þetta er risastór bókabúð sem sérhæfir sig í notuðum bókum. Það er bæði úrval af bókum á sænsku og ensku og er afar gaman að gramsa í fornbókum þarna inni.

Þessi búð er ekki einungis bókabúð heldur líka samkomustaður þar sem reglulega fara fram tónleikar og má finna blað við útidyrahurðina sem sýnir prógramm mánaðarins.

Það má einnig versla falleg póstkort, púsl og minnisbækur og því ættu flestir að finna eitthvað við sitt hæfi þarna inni.

 

Papercut

Líklega mesta hipster búðin á þessum lista. Ótrúlega skemmtileg búð á Södermalm með klassískum og nýjum bókum í boði á ensku, sem og spennandi bókum um Norðurlöndin. Hér er lögð áhersla á bækur um tónlist, myndlist, kvikmyndir og hönnun. Það er líka fjölbreytt úrval af púslum, spilum og fallegum minnisbókum. Einnig er að finna umfangsmikið úrval tímarita. Ég hefði alveg viljað vera þarna inni í marga klukkutíma að fletta fallegum bókum en lét mér duga að kaupa litla bók um Stokkhólm, enda alltaf vesen að koma mörgum kílóum af bókum heim í lok ferðar!

Deckarbokhandel i Gamla Stan

Þessi bókabúð vakti strax athygli mína sem aðdáandi krimma. Þessi bókabúð heitir á ensku Detective Book Store in Old Town. Hún er staðsett í krúttlega og litríka gamla bæ Stokkhólms, Gamla Stan. Eins og margar búðir á svæðinu er hún ekki mjög stór en er vel skipulögð. Inni í bókabúðinni má finna sérstakan bókaskáp tileinkaðan Agöthu Christie og svo er sérstakt svæði tileinkað Nordic Noir þar sem má meðal annars finna enskar þýðingar af íslenskum glæpasögum. Bókabúðin er með fána með mynd af Hercule Poirot að utan og pappaútgáfu af Benedict Cumberbatch sem Sherlock Holmes sem tekur á móti mann inni, þar er svo kósý arinn og hægindastóll til að gæða sér á bókum í. Ég vildi óska að við ættum svona bókabúð á Íslandi. Bæði er hægt að versla bækur á sænsku og ensku í búðinni og reglulega eru haldnir viðburðir þar.
Old town detective bookstore stokkhólmi

Hornstulls bokhandel

Ég verð bara að nefna bóksalann á horninu. Ég bý í næsta húsi við hann í Södermalm hverfinu og heimsótti hann fyrstu vikuna mína í Stokkhólmi. Ég tek ofan af fyrir fólki sem opnar bókabúðir á þessum tímum þar sem barist er um athyglina og vil styðja við sjálfstæða bóksala. Getum við kannski bara hætt að koma með vínflösku í matarboð og komið með bók í staðinn? Nei bara hugmynd. Hér eru nokkrar hillur með enskum bókum, skemmtilegar barnabækur og smábarnabækur á sænsku (tilvaldar til að æfa börnin í skandinavísku) og ágætis úrval af spilum og púslum.

hornstulls bokhandel stokkhólmi

Junibacken

Undir lokin vil ég vekja athygli á sætu búðinni á Junibacken barnasafninu. Þar er að finna helstu klassísku barnabókmenntir Svíþjóðar og gott horn er til að lesa  og skoða bækur með börnunum. Mér sýndist flestar bækur vera á sænsku, en það getur samt sem áður verið gaman að staldra við og fletta bókunum. Svo er hægt að kaupa Línuföt og alls konar skemmtilegt dót.

Lestu þetta næst

Alfa svíkur engan

Alfa svíkur engan

Alfa eftir Lilju Sigurðardóttur er ekki glæpasaga eftir hefðbundnu sniði, en hún fjallar þó á...

Lokkandi rós og dramatík

Lokkandi rós og dramatík

Kammeróperan setur á svið óperuna Carmen eftir franska tónskáldið Georges Bizet í Tjarnarbíó....

Hárbeitt Ormstunga

Hárbeitt Ormstunga

 Ormstunga er glænýr íslenskur söngleikur eftir þá Hafstein Níelsson og Ólíver Þorsteinsson. Þeir...