Er lífið kátur Kabarett?

9. júní 2026

Já, svo virðist vera. Í það minnsta er það veruleikinn inni í Þjóðleikhúskjallaranum sem hefur umbreyst í hinn margfræga Kit Kat klúbb í nágrenni Aleksanderplatz í Berlínarborg, um 1933, einmitt um það leiti sem Adolf nokkur Hitler og nasistaflokkur hans komast til valda í Þýskalandi.

Leikhús ókunna fólksins stendur að þessari sýningu sem hlaut heilar þrjár tilnefningar til Grímuverðlaunanna.

 

Kabarett í hartnær 100 ár

Kabarett-söngleikurinn er þekkt kanóna í söngleikjaheiminum, en sagan er byggð á skáldsögu Christophers Isherwoods, Goodbye to Berlin sem kom út árið 1939. Skáldsögunni var svo breytt í leikverk árið 1951, og svo í söngleikinn Cabaret árið 1966. Þýðingin sem leikhús ókunnuga fólksins notast við er eftir Karl Ágúst Úlfsson og er nokkuð trú upprunalega textanum en aðlagar verkið vel að íslensku orðfæri.

Einar skærustu stjörnur sýningarinnar, að öðrum ólöstuðum, eru þau sem standa að umgjörðinni, sem er algjör veisla fyrir augað. Búningar Huldu Kristínar Hauksdóttir eru samtímis hefðbundnir og frumstárlegir, mjög vandaðir og ná að fanga það fegursta og áhugaverðasta við söguna, leikarana og sviðið. Tónlistin er algjörlega frábær, en það er heil hljómsveit á sviðinu sem heldur uppi stuðinu og stemningunni og bæði fellur í bakgrunninn og skín skært. Leikmunir Bryndísar Magnúsdóttur og Melanie Ubaldo falla vel að umhverfinu. Hljóðhönnun, lýsing og leikgervi eru í höndum Kristjönu Rósar Sigurðardóttur, Jóhanns Friðriks Ágústssonar og Þórðar Gunnars Þorvaldssonar og ekkert er út á neitt af þessu að setja. Dans og sviðshreyfingar Sally Cowdin og Júlíu Kolbrúnar Sigurðardóttur eru virkilega fallegar og dansararnir eru heillandi, frjálslegir, skemmtilegir og lifandi um leið og hvert spor er óaðfinnanlegt, en það er ótrúlega erfitt að ná fram slíkum áhrifum. Tónlistarstjórn Fannars Sigurðssonar og Þorsteins Jónssonar er góð og leikstjórinn, Bjartur Örn Bachman, og aðstoðarleikstjórinn, Arndís María Ólafsdóttir, skapa góða og sterka sýningu sem unun er á að horfa.

Gallar og kostir

Eini gallinn við sýninguna er sú að fyrri helmingurinn er of langur, en það er reyndar innbyggður galli því leikverkið er ekki alveg nógu vel byggt upp. Það eru senur fyrir hlé sem mætti sleppa og/eða þétta, og þá sérstaklega í ástarsögu ávaxtasalans og húseigandans, sem er vissulega falleg og mikilvæg, en ég þarf ekki að eyða svona miklum tíma með þeim til að skilja hvað verið er að fara.

Leikararnir eru þó allir stórgóðir og þá sérstaklega skín stjarna Almars Blæs Sigurjónssonar mjög skært í hlutverki sýningarstjórans (Master of Ceremonies) en það er virkilega erfitt hlutverk þar sem það er svo krefjandi að leika hann með nægum ærslum og fáránleika án þess að verða gjörsamlega óþolandi. Almar nær því fullkomlega og fipast aldrei, heldur uppi stuði og orku, syngur eins og engill og dansar eins og einhver annar, jafn hæfileikaríkur engill.

Þá er Tómas Howser góður í hlutverki hins klaufalega Cliffs, sem er um leið heillandi og vandræðalegur og fyndinn í tilsvörum. Sally Bowles er leikin af Unu Ragnarsdóttur sem er með útlitið alveg upp á 10.5, er frábær leikkona og nær karakternum rosalega vel, um leið heillandi og harmræn. Söngur Unu er mjög fallegur, en rödd hennar er ekki alveg nægilega sterk til að yfirgnæfa hljómsveitina í sterkustu hlutum verksins svo áhorfandi heyrir ekki alveg nægilega í henni.

Sigríður Ásta Olgeirsdóttir er með sérlega áberandi fallega rödd í hlutverki frl. Kost, og Stefán Þór Þorgeirsson er ósköp heillandi og vinalegur nasisti, þar til hann reynist vera, þið vitið, nasisti, og er umbreyting hans úr vinalegum náunga í ógeð mjög ógnvekjandi og raunsönn. Allir aukaleikararnir standa sig með glæsibrag og eru í karakter allan tímann, halda orkustiginu virkilega háu og góðu án þess að fara yfir strikið og ljóst var að salurinn skemmti sér konunglega.

Fasismi og félagar

Ljóst er, því miður, að verkið sjálft á rosalega mikið erindi við nútímann, þar sem það er einmitt þessi fíni uppgangur fasisma í gangi, þjóðarmorð eru keyrð áfram í beinni útsendingu og við erum beðin kurteislega að gleyma öllu óþægilegu, loka augunum og hækka yfirdráttinn, gleyma okkur í bótoxi og neyslu og guð má vita hverju öðru en veruleikanum á meðan réttindi okkar eru markvisst strokuð út og yfirvöld láta sem þau séu að gera okkur greiða.

Til hamingju með frábæra uppsetningu, ég vona að allir skelli sér á Kabarett áður en það verður of seint. 

Lestu þetta næst

Í hugarheimi Hinriks

Í hugarheimi Hinriks

    Vetrarþrestir er nýjasta skáldsaga Bennýjar Sifjar Ísleifsdóttur og kom hún út á...