Dauðinn er líka líf

15. júní 2026

Í fyrra kom út barnabókin Hjartslátturinn hennar Lóu eftir mæðgurnar Lilju Cardew og Kristínu Cardew. Um er að ræða fallega myndskreytta og ljúfsára barnabók sem fjallar um dauðann og sorgina en jafnframt lífið og gleðina. Kristín skrifar textann og Lilja myndskreytir. Bókin fékk tilnefningu til Fjöruverðlaunanna árið 2026 og myndlýsingar Lilju fengu einnig tilnefningu til Bókmenntaverðlauna Reykjavíkurborgar sama ár. 

 

Bókin fjallar um hundinn Lóu og ungan eiganda hennar en Lóa á bara nokkra daga eftir ólifaða. Unga stelpan sem á og elskar hundinn Lóu hugsar sér að gera sem mest út úr þessum síðustu stundum sinnar ástkæru Lóu. Hún ákveður því að leyfa Lóu að gera öll sín uppáhalds prakkarastrik og á meðan ætlar hún líta í hina áttina, eða jafnvel hrósa henni fyrir.

Tímaglasið óhjákvæmilega

Sagan horfir beint í augun á dauðanum og ávarpar hann á öruggan hátt. Sorgarferli litlu stúlkunnar er fullt af næmni og sagan færir lesendum hlýju og öryggi í því viðkvæma og erfiða ferli sem er að sætta sig við að dauðinn sé hluti af lífinu. Hvernig dauði og sorg eru orðuð og ávörpuð er vandlega vel með farið og afar hjálplegt til að útskýra fyrir litlum börnum þennan óhjákvæmilega part lífsins. Þarna er samt kannski sérstaklega verið að ávarpa dauðann þegar hann er ekki skyndilegur. Dýralæknirinn í sögunni segir að það sé lítið eftir í tímaglasinu hennar Lóu, sem er ljúf og myndræn leið til að lýsa því þegar einstaklingur er kominn á síðasta æviskeið eða þegar alvarleg og löng veikindi spila inn í.  Þetta er samt góð bók fyrir alla til að eiga og nýta sér til að kynna börn fyrir dauðanum sem hluta af jarðvistinni.  

 Fyndin prakkarastrik 

Mikil glettni er í sögunni og prakkarastrikin koma stundum skemmtilega á óvart. Lesturinn er því aldrei þungur þrátt fyrir alvarlegt en jafnframt mikilvægt umfjöllunarefnið. Lífið með Lóu er greinilega skemmtilegt líf, og þegar tímaglasið hennar tæmist alveg er tilfinningin sú að það sé falleg stund full af ást, gleði og þakklæti  fyrir tímanum sem þær áttu saman. Sagan ber þannig mikið með sér á fáum blaðsíðum. Myndskreytingar Lilju eru  vandaðar og stíll þeirra skemmtilegur, í blöndu sinni af  teikningu og klippimyndum með rauða litinn í forgrunni. Bókin sjálf er einnig afar eiguleg og vel uppsett. Augljóst er að vandað hefur verið til verka og mikil virðing borin fyrir bæði börnum og viðfangsefninu. 

Hjartslátturinn hennar Lóu er ein besta íslenska barnabók fyrir yngstu lesendur sem ég hef rekist á sem fjallar um dauðann og sorgina. Áður en hún kom út fannst mér sárlega vanta bók sem þessa. Ég var síðan virkilega þakklát fyrir að eiga þessa bók þegar andlát bar að í fjölskyldunni minni og ég þurfti  verkfæri til að útskýra fyrir börnunum mínum fimm ára og þriggja ára þessa sáru og jafnframt oft óskiljanlegu staðreynd lífsins. Hjartslátturinn hennar Lóu nær vel að fjalla um þetta viðkvæma málefni á þann hátt að sé skiljanlegt börnum og sýnir vel hvernig sorg og gleði og líf og dauði dansa saman.   

Lestu þetta næst

Er lífið kátur Kabarett?

Er lífið kátur Kabarett?

Já, svo virðist vera. Í það minnsta er það veruleikinn inni í Þjóðleikhúskjallaranum sem hefur...

Taðskegglingar sameinist

Taðskegglingar sameinist

Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir hefur grínast og teiknað sig inn í hjörtu landsmanna með margvíslegum...

Heilun listamannsins

Heilun listamannsins

The Artist's Way kom fyrst út í Bandaríkjunum árið 1992 og markaði upphafið að „The Artist's Way"...

Allt það sem koma skal

Allt það sem koma skal

Ljóðsagan Í hæfilegu magni er annað útgefið verk höfundarins Heiðu Vigdísar Sigfúsdóttur og kom út...