Stoppið allt sem þið eruð að gera og farið í leikhús. Núna strax. Ástarseyði Bergamólíó kroppinbaks í sumarleikhúsinu Afturámóti er það besta sem komið hefur á svið síðan Afturámóti setti upp sýningar í fyrra. Það er magnaður andi í þessu metnaðarfyllsta leikhúsi þjóðarinnar um þessar mundir, leikgleðin, krafturinn og ástríðan drýpur af hverju verki og ég er ekki frá því að krúnudjásn ársins í ár sé hið glænýja og óviðjafnanlega Ástarseyði Beramólíó kroppinbaks, sem er samfélagsádeila, gaman- og harmleikur, hefðbundið og glænýtt allt á sama tíma.
Það er erfitt að vera ástfanginn
Plottið er einfalt og auðútskýrt – eftir fráfall konungsins þarf krónprinsinn Filippus að giftast til að geta orðið næsti kóngur. Af hverju? Af því það stendur í lögunum. Systir hans gæti líka gifst Ragnari, kærasta sínum til margra ára, en hana langar ekki til þess, því hún hatar hann. Allir hata hann. En vandinn er að Filippus vill alls ekki giftast því hann er þjáður af svo forboðinni ást að hann getur engum sagt hvaða konu hann elskar en hann er tilbúin að fórna konungsríkinu og öllum þegnum þess til að svívirða ekki ást sína með því að ganga að eiga aðra konu. Bergamólíó kroppinbakur, síðasti heiðvirði maður heimsins er því fenginn til að fá prinsinn til að giftast með öllum tiltækum ráðum og þá hefst aldeilis spennandi atburðarás með ófyrirsjáanlegum slaufum.
Ádeila verksins er skýr og sterk, auðvaldið liggur vælandi og brundandi og ber sig illa því það er svo ástfangið á meðan það er matað á vínberjum og sætu víni, en leikskólabörn falla í drónaárásum utan við hallarhliðin, fólk er soðið lifandi fyrir minnstu óhlýðni og fallöxin er mikið nýtt til afhöfðanna. Verkið verður aldrei siðaboðskapslegt en það er meinfyndið og hárbeitt í ádeilunni og stígur hvergi feilspor. Þá er texti verksins ótrúlega flottur, skrifaður á lifandi og skemmtilegu máli, bæði bundnu og lausu (er það andstæðan við bundið?) og er ljóst að höfundurinn, Einar Baldvin Brimar, á mikla framtíð fyrir sér í leikritaskrifum en hann hendir sér beint í fremsta flokk með hispursleysi, húmor og stíl. Verkið er hans annað leikverk, en í fyrra sýndi Afturámóti hans fyrsta verk.
Leikarar leikarar leikarar
Jesús kristur, hvað leikararnir eru góðir. Allir sem einn. Mikael Kaaber er í lykilhlutverki sem prinsinn Filippus sem býr við þær óstjórnlegu þjáningar að vera ástfanginn. Mikael sýnir og sannar að hann er fáránlega fær leikari, en ég hef séð hann í ýmsum hlutverkum síðustu árin og alltaf kemur hann mér á óvart með því að toppa sig. Hann er stórkostlega fyndinn sem grátbroslegi prinsinn, hlutverk sem er vandmeðfarið því ef það er of eða vanleikið glatast töfrarnir, og Mikael finnur akkúrat rétta staðinn, stillir sér upp þar og fipast aldrei. Bergamólíó sjálfur, leikinn af Freysteini Sverrissyni er einnig góður og sterkur, hann er eini leikarinn sem aldrei fær neitt flipp, hann er alvarlegur og þungur allan tímann og gerir það dásamlega vel. Hann nær viðkvæmni og næmni og leikur hlutverk síðasta siðprúða mannsins í heiminum á þéttan og vel skipulagðan hátt, og raddbeiting hans er slík að áhorfendur hanga á hverju orði sem hann segir. Hann vinnur vel með kraft raddar sinnar og sviðsnærveru og í höndum síðri leikara væri hlutverkið kannski flatt, en Freysteinn gerir það að sínu og meira til.
Þá ber að nefna Hólmfríði Hafliðadóttur sem Lonníettu, systur Filippusar sem er algjör senuþjófur sem alltaf kemur á óvart. Starkaður Pétursson sem Ragnar, kærastinn hennar, er einnig yndislegur í ömurlegheitum sínum, og öll holning hans líkamleg tilbrigði eru virkilega fyndin og skemmtileg og aldrei gerir hann of mikið, hann er alltaf réttu megin við ýkjurnar svo hann verður fyndinn skemmtilegur og lifandi en ekki fígúra.
Skósveinar Filippusar eru vel leiknir og þjóna uppbrotshúmor vel, en mikið af leik þeirra er líkamlegur og í viðbrögðum sem eru ótrúlega vel stillt af og hæfileg. Þá er Sigríður Olga glæsileg í hlutverki eiginkonu Bergamólíós, raddar skynseminnar. Það vakti athygli ýmissa að Guðrún Svava sem er best þekkt undir listamannanafninu Gugga í gúmmíbát er að stíga sín fyrstu skref á leiksviðinu í þessu verki, og ef einhver vill vita hvort Guðrún Svava sé góð leikkona þá get ég með góðri samvisku sagt að hún sé hin fullkomna leikkona í akkúrat þetta hlutverk, og salurinn hélt með henni allan tímann, hló mikið og naut veru hennar á sviðinu.
Dóttir þeirra Ragnars og Lonníettu er leikin af glæsibrag og auðvitað púkinn sem þjónar hlutverki sögumanns og almenns drýsils. Það er ljóst að leikhópurinn er mjög samstilltur og hefur gefið sig allan í verkið.
Allt gengur upp
Leikstjórinn, Egill Andrason, hefur skilað af sér frábæru starfi en það er ekkert í leikstjórn hans og umsjón sem hægt er að setja út á. Hann heldur uppi hárréttu orkustigi allan tímann svo þessi sjötíu mínútna sýning flýgur hjá svo ógnarhratt að mann langar helst að sjá hana aftur. Handritið er slíkt að það væri auðvelt að stýra skipinu (gúmmíbátnum?) upp á sker, en það er farið með verkið af þvílíkri næmni og auga fyrir styrkleikum og húmor í ljótleika að aðdáunarvert er.
Búningar, ljós og hljóð, leikmynd og förðun eru auk þess öll til fyrirmyndar – það er farið hefðbundna leið þar sem allir eru klæddir upp á fornan hátt og umgjörðin fylgir því, en kómískt uppbrot kemur fram í nútímatækni sem rekur inn nefið í formi spjaldtölvu Klementínu og tíðum drónaárásum. Þar sem verkið er byggt á grísku harmleikaformi með kór og öllu á tíðum eru nútíma-innskotin virkilega skemmtileg og óvænt. Það sem Einari Baldvini hefur tekist er að skapa nýtt og dásamlegt íslenskt leikrit sem byggir á gamalli hefð og gerir hana algerlega að sinni, og beitir fáránleika, húmor og ádeilu til að skapa margtúlkanlega sögu á traustum grunni, og nýta einfaldan ramma til að opna á margræðni.
Umgjörð sýningarinnar er virkilega vel heppnuð, salurinn er nýttur mjög vel og á óvæntan hátt og ljóst er að mikið hugmyndaflug, ástríða og sköpunarkraftur er það sem gerir sýninguna ógleymanlega.
Hin heilaga fötlun
Kíkjum samt aðeins á eitt sem ég velti fyrir mér. Það er titill verksins og aðalpersóna þess, kroppinbakurinn okkar. Ég var ekki alveg viss hvað mér myndi finnast um fatlaða persónu sem leikin er af, að mér vitandi, af ófötluðum leikara, og það í hlutverki sem oft á tíðum er afmennskandi fyrir persónuna – sem skósveinn og/eða hirðfífl sem hefur það verkefni að fella hugi ófatlaðs aðalfólks til ástar. Og jú, eins ýmsar fatlaðar persónur býr Bergamólíó yfir yfirnáttúrulegri góðmennsku og fórnfýsi. Hann tekur konungsríkið, samfélagið og það rétta fram yfir eigin hag, en það sem skilur hann frá Quasimotoum fyrri ára er að hann er ástfanginn af konu sem elskar hann til baka, en hann er hamingjusamlega giftur ástinni sinni, og strax við það verður hann heilli og dýpri persóna og betri birtingarmynd fatlaðs einstaklings en oft er í boði á sviði. Hann pissar heldur ekkert í sig. Konan hans er falleg, klár og góð og er greinilega mjög ástfangin af manni sínum. Samband þeirra er til fyrirmyndar í alla staði. Í seinni helmingi verksins kemur svo í ljós að hann Bergamólíó okkar er ekki eingöngu drifkraftur í framvindu sem stendur aðeins utan við söguna heldur stór og mikilvægur þáttur í henni, hjarta framvindunnar og sögunnar allrar. Sagan er ekki konungsins ógeðfellda eða siðlausu systur hans, sagan er Bergamólíós, sagan er mannkynsins, samfélagsins og ástarinnar.
Í heildina segi ég áfram Bergamólíó og allir í leikhús. Ef þetta verk verður ekki tekið lengra og skellt á fjalir vetrarleikhúsanna líka er íslenskt leikhúslíf að missa af gullnu tækifæri til að bjóða nýjan og efnilegan sviðshöfund velkominn inn í hug og hjörtu þjóðarinnar. Til hamingju allir sem að verkinu standa.





