Staðgengill
Gýtur augum
á útsaumaðan hjörtinn
efst í stigaganginum
tignarleg krónan
fylgir henni
álútri
en einbeittri
upp rósalögð
þrepin
þar sem hún dregur á eftir sér
fagursveigða
hlyngrein
í blóma
sem óvænt illviðrið
braut
frá stofni
býr um kvistinn
sinn
í rökkrinu
undir fiðri og dún
kúrir
svo vængjuð laufin
umfaðma hana
við dyrnar má heyra – kannski
vindinn hvísla huggunarrómi
og raula
ástúðlega
[hr gap=“30″]
Jónína Óskarsdóttir/Nína er með MA. í menningarmiðlun og er bókavörður af guðs náð. Mörg undanfarin ár hefur hún tekið viðtöl fyrir tímaritið Heima er bezt. Örsögur hafa birst eftir hana í tímaritum og ljóð m.a. í TMM. Hún er óútgefið ungskáld í eldri kantinum og stundar MA nám í ritlist við HÍ.