Síðasta laugardag 2. mars voru tilnefningar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar tilkynntar í Gerðubergi við hátíðlega athöfn. Veitt eru verðlaun í þremur flokkum og eru fimm bækur tilnefndar í hverjum þeirra. Flokkarnir eru frumsamdar barnabækur, myndlýstar bækur og þýddar bækur. Verðlaunin verða afhent síðasta vetrardag í Höfða.
Tilnefningarnar voru í hverjum flokki fyrir sig:
Frumsamdar barnabækur
- Ljónið eftir Hildi Knútsdóttur
- Rotturnar eftir Ragnheiði Eyjólfsdóttur
- Silfurlykillinn eftir Sigrúnu Eldjárn
- Svarthol Hvað gerist ef ég dett ofan í? eftir Sævar Helga Bragason
- Sölvasaga Daníelssonar eftir Arnar Má Arngrímsson
Myndlýstar bækur
- Ljóðpundari með myndlýsingum Sigrúnar Eldjárn og ljóðum eftir Þórarin Eldjárn
- Sagan um Skarphéðin Dungal sem setti fram nýjar kenningar um eðli alheimsins myndlýst af Rán Flygenring við texta Hjörleifs Hjartarsonar
- Milli svefns og vöku með myndum Laufeyjar Jónsdóttur við texta Önnu Margrétar Björnsson
- Sjúklega súr saga, myndlýst af Halldóri Baldurssyni með texta eftir Sif Sigmarsdóttur
- Snuðra og Tuðra eiga afmæli, myndlýst af Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur við texta Iðunnar Steinsdóttur
Þýddar bækur (þýðendur tilnefndir)
- Guðni Kolbeinsson fyrir þýðingu á Villimærin fagra eftir Philip Pullman
- Þórdís Bachmann fyrir bók 2 í bókaflokknum Hvísl hrafnanna eftir Malene Sølvsten
- Erla E. Völudóttir fyrir Ferðalagið eftir Timo Parvela og Björn Sortland
- Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson fyrir Meira af Rummungi ræningja eftir Otfried Preußler
- Jóns St. Kristjánssonar á Seiðmenn hins forna eftir Cressida Cowell