Hrakföll og hláturrokur – Bara smástund! í Borgarleikhúsinu

4. október 2022

Gífurleg stemning ríkti þegar ég gekk inn í Borgarleikhúsið föstudaginn 23. september, á frumsýningarkvöldi gamanleiksins Bara smástund! eftir Florian Zeller, en verkið er sett á svið í nýrri glimrandi þýðingu rithöfundarins Sverris Norlands. Lifandi harmonikkutónlist fyllti rýmið ásamt háværum skvaldri spenntra leikhúsgesta. Þegar komið var inn í sal var setið í hverju einasta sæti og áhorfendur biðu eftirvæntingarfullir eftir að fá að hlæja sig máttlausa.

Gefðu mér bara smástund 

Leikritið hefst á innkomu hjónanna Michel og Nathalie. Þorsteinn Bachmann í hlutverki Michel, klæddur kóngabláum, örlítið of stórum, jakkafötum, veður inn á sviðið en Sólveig Arnarsdóttir  fylgir honum í hlutverki Nathalie konu hans í fjólubláum silkislopp. Þau byrja um leið að fleygja fram hröðum textanum en það vantar svolítið upp á orkuna á sviðinu til að byrja með. Þau standa þarna tvö fyrir framan heilan sal sem bíður eftir að þau segi eða geri eitthvað fyndið. Það tekur (bara) smástund fyrir þau að ná upp orkunni og þá fara brandararnir loksins að lenda og hlátur heyrist á rangli í áhorfendaskaranum. Hlátrasköllin stigmögnuðust svo með hverri senunni.

 Í upphafi leikrits er það Nathalie sem lýsir ofurdramatískt yfir að það sé svo margt sem liggi á henni og hún þurfi að tala um. Samskipti hjónanna eru kostuleg en þau eru bæði erkitýpur út í gegn. Zeller nýtir þessar rótgrónu erkitýpur til að skapa farsakenndar aðstæður og deila á þessar birtingarmyndir. Fjölskyldufaðirinn Michel gæti ekki verið sjálfselskari og er það skýrt undirstrikað með heiti plötunnar sem hann þráir svo heitt að hlusta á, Me, myself and I. Honum gæti ekki verið meira sama um konu sína og son, en í eina skiptið í leikritinu sem hann kemst í uppnám er það í tengslum við svik besta vinar hans.

„Samskipti hjónanna eru kostuleg en þau eru bæði erkitýpur út í gegn. Zeller nýtir þessar rótgrónu erkitýpur til að skapa farsakenndar aðstæður og deila á þessar birtingarmyndir.“

Það sem heldur öllu verkinu saman er grátlega einfalt atriði, Michel hefur loksins fundið vínylplötuna Me, Myself and I eftir Niel Youart sem hann hefur leitað áratugum saman í öllum plötubúðum Parísar. Hann þarf bara smástund til að hlusta á plötuna í ró og næði, en þá verður hann „hamingjusamur maður“. En það er alltaf eitthvað eða frekar einhver sem truflar hann.

Erkitýpur sem koma á óvart

Ég viðurkenni að ég var mjög spennt að sjá Vilhelm Neto á sviði Borgarleikhússins en skyndilega varð ég svolítið smeyk í sætinu mínu þegar hann kom inn á sviðið í hlutverki pólska píparans Léos og var látinn tala bjagaða íslensku til að undirstrika þessa hvimleiðu stereótýpu. Það stefndi allt í að hér væri verið að setja á svið fordómafulla birtingarmynd persónu en svo var sko aldeilis ekki. Óheppni píparinn Léo var ekki allur sem hann var séður og uppskar Villi Neto mikil hlátrasköll fyrir frammistöðu sína að en ég læt ekki meira í ljós varðandi það.

Sigurður Þór var stórkostlegur í hlutverki sonarins Sébastien eða Fucking Rat eins og hann vildi láta kalla sig. Margir hlóu sig máttlausa þegar hann kom inn á sviðið og öskraði til skiptis á foreldra sína. Í síðasta hluta leikritsins fer hann alveg hamförum á sviðinu þegar hann gjörsamlega missir það og það sést loksins í gegnum þetta svarta og harða yfirborð.

Jörundur Ragnarsson stóð sig vel sem óþolandi nágranninn Pavel, hann var alveg passlega pirrandi og tókst að láta áhorfendur hlæja með því að vera aldrei á sömu blaðsíðu og hinir, sífellt að endurtaka atburðarásina og fara gjörsamlega í taugarnar á Michel sem reyndi stöðugt að losna við hann úr íbúðinni.

Sólveig Guðmundsdóttir var flott í hlutverki Elsu en það kom mér á óvart að hin kvenpersónan í leikritinu hagaði sér nákvæmlega eins, semsagt fengu áhorfendur tvær eins birtingarmyndir af konum á meðan farið var yfir víðari völl karlamegin. Það var svolítið sorglegt að sjá en ó jæja.

 

Líf að hruni komið

Í síðasta hluta verksins á Bergur Þór innkomu sem Pierre og virðist hans eina hlutverk í leikritinu að láta lúberja sig og fá áhorfendur til að hlæja að óförum hans. Og það var vel hægt að hlæja að þeim, það er auðvitað ekki verið að róa mikið á dýptina hér en samt sem áður kom mér þetta örlítið á óvart. Þegar hingað er komið við sögu er mjög táknrænt að horfa á leikmyndina hrynja og sviðið fyllast af kaos á meðan bæði hjónaband og líf Michels er að fara til fjandans. Virkilega vel gert hjá leikmyndahöfundinum Helgu I. Stefánsdóttur og leikstjóranum Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur en uppbygging og ris leikritsins virka fantavel.

Búningarnir eru einstaklega fallegir að mínu mati, hver persóna fær sinn lit og eru þau flest alltaf í sama búningnum, fyrir utan Nathalie sem skiptir um klæði í hvert skipti sem hún gengur út af sviðinu. Ég hefði viljað að raunveruleg tónlist hefði spilað stærra hlutverk í uppsetningunni þar sem atburðarásin hverfist í raun í kringum að fá að hlusta á tónlist. Tónlist eða einhversslags hljóðheimur hefði jafnvel aðstoðað leikarana við að halda uppi orku á sviðinu en oftar en ekki voru tveir leikarar einir á sviðinu, það var örsjaldan að það voru þrír eða fleiri.

Hrakföll og hláturrokur 

Bæði mér og manninum mínum tókst að skemmta okkur konunglega á þessari sýningu. Það voru þó augnablik þar sem orkan féll og hláturinn hætti að duna í salnum, en leikararnir náðu alltaf orkunni upp aftur. Þorsteinn stóð sig virkilega vel í hlutverki Michel og var það á herðum hans að halda uppi sýningunni nánast allan tímann. Annars fannst mér Sigurður Þór standa upp úr, hann var svo tilbúinn til að ganga alla leið sem Sébastien að innkomur hans voru alltaf stórfyndnar.

Bara smástund! er tilvalin skemmtun fyrir þau sem vilja gleyma sér eina kvöldstund og hlæja yfir hrakföllum sjálfselskra og yfirgengilegra persóna. Leiktexti Florian Zeller er snarpur og kómískur og honum tekst að lauma inn örsmárri samfélagsádeilu sem á enn við í dag þó að yfir heildina hafi leikritið það augljósa markmið að skemmta og vekja upp hlátturrokur áhorfenda.

Höfundur: Florian Zeller
Þýðing: Sverrir Norland
Leikstjórn: Álfrún Helga Örnólfsdóttir
Leikmynd: Helga I. Stefánsdóttir
Leikarar:
Þorsteinn Bachmann, Sólveig Guðmundsdóttir, Bergur Þór Ingólfsson, Sigurður Þór Óskarsson, Vilhelm Neto og Jörundur Ragnarsson

Lestu meira

Endalaust skeytingarlaust myrkur

Endalaust skeytingarlaust myrkur

Breadcrumbs eftir Jennifer Haley var frumsýnt í Tjarnarbíói 28. ágúst en verkið er í leikstjórn Juliette Louste. Breadcrumbs segir frá flóknu sambandi rithöfundarins Alidu við unga aðstoðarkonu, Beth, sem flyst inn á heimili hennar til þess að aðstoða hana við að...

Sorgin lifnar við í útfjólubláu ljósi

Sorgin lifnar við í útfjólubláu ljósi

Svört orkídea er þriðja ljóðabók færeyska skáldsins Vónbjartar Vang og kom nýverið út í íslenskri þýðingu Móheiðar Hlífar Geirlaugsdóttur. Ljóðin komu út hjá Skriðu bókaútgáfu en þar eru þau bundin inn í glæsilegt bókverk þar sem fylgir með lítið útfjólublátt vasaljós...

Lestu þetta næst

Hinsegin leslisti 2026

Hinsegin leslisti 2026

Hinsegin bækur ná yfir ýmsar tegundir og undirtegundir, þær má finna undir merkjum ýmissa stefna...

Aktívismi í glimmerbúning

Aktívismi í glimmerbúning

Kynfræðslukarnival fyrir fullorðna var ekki á bingóspjaldinu mínu en mikið er ég ánægð að hafa...