Lifi ljóðið – Tilnefningar til Maístjörnunnar

29. apríl 2026

Maístjarnan eru mikilvæg verðlaun. Það þarf að huga að ljóðinu og það gleður mitt ljóðelska hjarta að því sé sérstaklega fagnað. Í ár fengu sex frábærar ljóðabækur tilnefningu til verðlaunanna sem Landsbókasafn Íslands og Rithöfundasambandið standa fyrir. Sjötíu ljóðabækur voru gjaldgengar en það eru allar útgefnar íslenskar ljóðabækur ársins 2025 sem skilað var í skylduskilum til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. 

Lestrarklefinn hefur nú þegar fjallað um fjórar af sex tilnefndum verkum og það má ýta á slóðina sem tengd er við nafn bókanna ef áhugi er fyrir að lesa umfjallanirnar:

Fyrir vísindin eftir Önnu Rós Árnadóttur. Útgefandi: Benedikt
Fimm ljóð eftir Eirík Örn Norðdahl. Útgefandi: Mál og menning
Þyngsta frumefnið eftir Jón Kalman Stefánsson. Útgefandi: Benedikt
Mara kemur í heimsókneftir Natöshu S. Útgefandi: Benedikt
Postulín eftir Sunnu Dís Másdóttur. Útgefandi Mál og menning
Félagsland eftir Völu Hauks. Útgefandi: Mál og menning

Dómnefnd skipa Áslaug Jónsdóttir fyrir hönd Rithöfundasambandsins, Tómas Ævar Ólafsson fyrir hönd Landsbókasafnsins og Sveinn Yngvi Egilsson fyrir hönd Háskóla Íslands og handhafi verðlaunanna verður kunngjörður við athöfn í Þjóðarbókhlöðunni þann 20. maí.

Gaman er að segja frá því að verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 2017 og er markmið verðlaunanna tvíþætt. Að hefja upp íslensku ljóðabókina og hvetja fólk til að yrkja, skrifa og gefa út og líka til að ýta undir að bókunum sé skilað í skylduskil svo þær varðveitist og séu aðgengilegar því algengt er að ljóðabækur séu einkaútgáfa og/eða prentaðar erlendis.

Þau sem vilja glöggva sig betur á þessum sterku ljóðabókum geta skellt sér á Þjóðarbókhlöðuna en allar tilnefndar bækur eru til sýnis í anddyrinu.

Sunna Dís, Jón Kalman, Annu Rós, Vala Hauks, Einar Kári Jóhannsson frá Benedikt og Vera Knútsdóttir frá Forlaginu.

Lestu þetta næst

Hvar eru þessar sprungur?

Hvar eru þessar sprungur?

Fuglamál er fyrsta skáldsaga myndlistarkonunnar Mörtu Maríu Jónsdóttur og kom út á dögunum hjá...

Dauðinn er líka líf

Dauðinn er líka líf

Í fyrra kom út barnabókin Hjartslátturinn hennar Lóu eftir mæðgurnar Lilju Cardew og Kristínu...

Er lífið kátur Kabarett?

Er lífið kátur Kabarett?

Já, svo virðist vera. Í það minnsta er það veruleikinn inni í Þjóðleikhúskjallaranum sem hefur...

Taðskegglingar sameinist

Taðskegglingar sameinist

Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir hefur grínast og teiknað sig inn í hjörtu landsmanna með margvíslegum...

Heilun listamannsins

Heilun listamannsins

The Artist's Way kom fyrst út í Bandaríkjunum árið 1992 og markaði upphafið að „The Artist's Way"...

Allt það sem koma skal

Allt það sem koma skal

Ljóðsagan Í hæfilegu magni er annað útgefið verk höfundarins Heiðu Vigdísar Sigfúsdóttur og kom út...