Að brjótast undan kjarnanum

29. nóvember 2026

Allt í rugli er barna – og ungmennabók eftir Yrsu Þöll Gylfadóttur en upphafsblaðsíðan í hverjum kafla er skemmtilega myndskreytt af Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur. 

Bókin fjallar um hina þrettán ára Sigrúnu sem stendur á ákveðnum tímamótum. Hún er á þeim aldri þegar að sjálfsmeðvitundin er á fullum snúningi allan daginn alla daga og hún hefur ákveðið að vilja ekki vera lúði lengur, eða það sem samfélagið skilgreinir sem lúða. Hún vill því kasta af sér öllum fyrrum áhugamálum og jafnvel eignast aðra vini. Þegar ný og flott stelpa flytur í götuna til hennar ákveður Sigrún að kynnast henni en sú stelpa er algjör andstæða við hana sjálfa og fjölskyldu hennar, sem er einmitt einn af dragbítum Sigrúnar í vegferð hennar vegna þeirra furðulegu skoðana og stíls.

 Að finna eigin leið 

Yrsu Þöll hefur tekist vel að kjarna eitt meginumhugsunarefni ungmenna: sjálfið og þá þroskavegferð sem felst í því að finna sjálfstæðið frá fjölskyldu sinni og foreldrum.

Allir geta fundið sig í aðalpersónunni Sigrúnu á einhvern hátt en þó að Yrsa noti hressandi ýkjur í persónusköpun og söguframvindu er undirtónninn raunsær og kunnuglegur. Sigrún vill brjótast undan fjölskyldu sinni og finna sína eigin leið í lífinu. Hún vill finna sig. Foreldrar Sigrúnar ásamt systkinum hennar þremur elska öll skák, útilegur og heimsbókmenntir. Á sama tíma er þeim alveg sama um ytri þætti eins og útlit, hreinlæti og efnisleg stöðutákn samfélagsins. Æskuvinkona Sigrúnar hún Hallgerður svipar mjög til þeirra og hefur Sigrún lengi vel fundið sig í því umhverfi og alist sæl og glöð upp í því. 

 

Endursköpun unglingsáranna 

En með unglingsárunum kemur sjálfsmeðvitundin og álit jafnaldra fer að skipta meira máli.  Sigrún er ekki viss lengur hvort hún hafi áhuga á sömu hlutum og hún gerði þegar hún var lítil og henni leiðist að vera álitin lúði eða asnaleg af bekkjarfélögum sínum. Hún ákveður því einn daginn að breytast og þegar hún kynnist Anítu, stelpu sem er nýflutt í götuna, sér hún leið og ákveðið færi til að endurskapa sjálfa sig. 

 

Að hafa áhrif krefst ábyrgðar

Aníta er ákveðin týpa og fagnar því hve Sigrún er til í að breyta sér mikið. Því þá getur hún haft áhrif. Hún fer ansi langt í þessu áhrifum sínum  sem er kannski skiljanlegt því það er auðvitað mjög valdeflandi fyrir unga þrettán ára stelpu að fá slíka stjórn. Aníta nær að sannfæra Sigrúnu um alls kyns hluti, þar á meðal að fá foreldra sína til að breyta sér líka með mjög skemmtilegum en jafnframt óþægilegum afleiðingum og atburðum. 

Yrsa fléttar inn í söguframvinduna textaskilaboðum á áreynslulausan hátt og er talsmáti persónanna aldrei þvingaður eða að reyna of mikið. Hún nær góðum takti og flæði í sögunni og persónusköpunin er vel gerð. Eins og áður sagði að þá eru sumar persónurnar ýktar verulega og má þar sérstaklega nefna fjölskyldu Sigrúnar en það er þó aldrei yfirgnæfandi heldur skapar það ákveðinn húmor auk þess sem að það ýtir undir ungmenna-sýnina sem getur oft og tíðum séð allt í ýktara ljósi en það er. Mér þykir Yrsa fara inn á nokkuð hugrakkar slóðir með því að sýna aðalpersónu sem ýtir vinkonu sinni frá sér, en þó að bókin fari ekki mjög djúpt í tilfinningarnar að þá tekst henni að sýna veruleika sem örugglega margir kannast við en hún síðan hjúpar hann húmor og grípandi galsa. 

 

Ruglið sem fylgir því að þroskast

Allt í rugli er bók sem fjallar um það að vaxa úr grasi, hún fjallar um þroska en einnig um vinasambönd og hversu mikilvægt það er að setja sér og öðrum mörk. Yrsa Þöll fer inn á ýmsa þætti í þessari hressu og húmorísku sögu en meðal annars gefur hún innsýn inn í gaslýsingu og toxísk vinasambönd. Að auki sýnir hún hversu eðlilegt það getur verið fyrir einstakling á þessum aldri að vilja þróast frá æskusjálfi, hvort sem það er að breyta um áhugamál eða skipta um vini. 

Yrsu Þöll tekst afar vel til að skapa bæði skemmtilega sögu sem er uppfull af húmor og gleði en sem er á sama tíma einnig að ákveðnu leyti erfið og talar inn í líf ungmenna í dag. Allt í rugli er saga sem í senn skemmtir lesanda sínum, skilur hann og vekur hann til umhugsunar.

Lestu þetta næst

Í hugarheimi Hinriks

Í hugarheimi Hinriks

    Vetrarþrestir er nýjasta skáldsaga Bennýjar Sifjar Ísleifsdóttur og kom hún út á...