Sjálfshjálparhópur, sértrúarsöfnuður eða syndaaflausn?

 …and Björk of Course eftir Þorvarld Þorsteinsson í leikstjórn Grétu Kristínar Ómarsdóttur í Borgarleikhúsinu

Ásta tekur á móti nýjum hóp á sjálfshjálparnámskeið. Þegar þátttakendur kynna sig sjá áhorfendur að flestar persónur hafa óhreint mjöl í pokahorninu, eða í það minnsta bælt eða misnotað mjöl. Glæpamjöl. Hvernig ætli þessar persónur tengist innbyrðis og hvaða örlög bíða þeirra á næstu tveimur og hálfum klukkutíma? 

„Er þetta ekki hreinn og klár viðbjóður hvert sem litið er?“

Velkomin

Sviðið er kósý. Grjónapúðastólar standa á víð og dreif, birtan er hlý og Sveppi tyllir sér fremst á sviðið og segir áhorfendum sögu. Hinar persónur verksins ganga svo á svið og setjast í hring ásamt Sveppa. Tíminn er að byrja. Sjálfshjálpartíminn. Einn í einu standa karakterarnir fimm upp og kynna sig. Hjónin Hulda og Indriði, leigubílstjórinn Þráinn og maki hans Stefanía, hinn ungi og týndi Hans sem dreymir um að opna raftækjaverslun og taka þátt í hópnauðgun (don‘t we all) og svo Marta, sem er fræg og mikið niðri fyrir. Öll eru þau komin upp á náð og miskunn Ástu, sem fylgir predikunum sjálfshjálpargúrúsins Will Johnson, og mun vonandi hjálpa þeim að finna hamingjuna. Þá er áhugavert að landkynning okkar hefur ekkert þróast síðan 2002, þegar leikritið var skrifað. Við erum enn að tala um Björk og víkinga og fallegar, íslenskar konur. Þegar súrrealismi leikritsins vex finnst mér þetta virka eins og frábær og raunsönn lýsing á sértrúarsöfnuði sem fer úr böndunum. Persónur fylgja ekki endilega reglum samfélagsins og hvað má og má ekki er á gráu svæði.

Góð byrjun

Verkið byrjar skemmtilega, týpurnar eru kunnuglegar og samskipti þeirra áhugaverð. Jón Gnarr leikur harmi sleginn kennara sem er orðinn einmana eftir að hann hætti að kenna, (og áhorfendur finna á sér að það var ekki af neinum æðislegum ástæðum sem hann hætti) en þar sem hann er Jón Gnarr getur fólk ekki annað en hlegið að öllu sem hann segir. Svo sama hvað hann leikur vel og tárast og skelfur, það er allur salurinn í kasti. Svo heitir persónan hans líka Indriði. Það getur ekki hafa hjálpað við að draga úr kómík.

Stefanía segir okkur frá vanmáttarkennd gagnvart systur sinni, Þráinn talar endalaust um að vera leigubílstjóri og Marta er bæði spennt að tjá sig og undarlega reið, bæld. Leikritið tekur svo alvarlegri beygju þegar persónur segja frá misnotkun af hendi fjölskyldumeðlima, deila hræðilegum fantasíum og vægast sagt vafasamri, ef ekki hreinlega glæpsamlegri, hegðun.

Kynsveltar konur

Stefanía og Hulda eiga það sameiginlegt að vera kynsveltar, þó af mismunandi ástæðum. Á tímabili velti ég því fyrir mér hvort hægt væri að sameina þær í eina persónu sökum líkinda þeirra, en þær eru einnig að berjast við minnimáttakennd sem brýst fram í yfirlæti og grobbi og samanburði við aðra. Nú hef ég ekki lesið handritið en velti því fyrir mér hvort hefði mátt taka annan snúning á Stefaníu og Huldu og hvernig þær takast á við lífið. Marta og Ásta eru þó ólíkar þeim, Marta bæði skrítin og fræg með smá stjörnustæla en einnig brotin, ung kona sem deilir erfiðum reynslum. Ásta er greinilega alveg farin á límingunum, sem voru sennilega ekki vel samhangandi til að byrja með. Þá eru karlkyns persónurnar þrjár ólíkar innbyrðis. Þráinn er einfaldur maður, Indriði óþægilega flókinn og Hans er að ég held með einhvern ógreindan geðsjúkdóm eða jaðarpersónuleikaröskun.

Skemmtilegur leikur og góðir mónólógar…

Leikarar standa sig vel og þá sérstaklega María Heba sem mér finnst svo sannfærandi í hlutverki sínu að ég var næstum gengin í sértrúarsöfnuðinn hennar. Jón Gnarr, Urður Bergsdóttir og Davíð Þór eru líka feikilega góð og Sverrir Þór kemur mjög skemmtilega á óvart sem fulltrúi meðalmannsins. Þá eru búningarnir sem Harpa Birgisdóttir sér um eru alveg æðislegir, lýsing og hljóðheimur heilsteypt og falleg og sviðið og leikmyndin vel nýtt.

Svo velti ég því fyrir mér hvort það að eini svarti leikarinn í hópi hvítra leiki þann karakter sem er laminn, bundinn, kynferðislega áreittur og gerður kynlífsviðfangi í hefnd hvítra kvenna við kúgun hvítra karlmanna er ádeila á ríkjandi valdakerfi þar sem hinn hvíti karl trónir á toppnum en hvíta konan kemur fast á eftir honum og kúgar fólk sem er jaðarsettara en þær sjálfar, eða hvort það sé tilviljun að Davíð Þór leiki hlutverk Hans. Er persónan skrifuð þannig að hún sé lesin sem jarðarsett á einhvern hátt eða er leikaraval það sem hefur þessi áhrif?

…í annar sundurlausu og of löngu verki

Höfundur segir um verkið að það eigi að lýsa ástandi fremur en að segja sögu frá upphafi til enda. Verkið er örlítið stefnu- og tímalaust og þrátt fyrir að margt skemmtilegt, fyndið og veki mann til umhugsunar týnist þráðurinn. Ég myndi segja að verkið sé klukkutíma of langt, sem er synd því það væri ekkert upp á það að klaga ef það væri hnitmiðaðra.

Þá er tíminn fljótandi í verkinu og óvíst er hvort allt gerist línulega eða ekki og þá eins hversu langt líður á milli atvika. Mér fannst á tímabilum eins og ég væri ekki að horfa á fullunnið verk en ég veit ekki hvort það er sökum leikstjórnar eða því hvernig verkið sjálft er skrifað. Mér fannst í það minnsta vanta meiri bindingu.
Þá eru kannski of margar persónur sem deila sviðsljósinu til að heilsteypt frásögn myndist hjá þeim öllum. Indriði og hans mál virðist eiga að vera mest aðal, en þó fáum við ekki að vita það mikið um konuna hans eða hvernig mál hans leysist. Það er vissulega flott hvernig persóna hans er byggð upp en ég spyr mig hvort verkið myndi græða á því ef honum væri leyft að vera alveg aðal fremur en svona aðal inn á milli.

Leikin atriði innan leikritsins, styttri sketchar þar sem persónur verksins bregða sér í hlutverk gera verkið þá örlítið sundurlaust og maður spyr sig hvers vegna þeir eru þarna? Er það til að hafa eitthvað fyndið, en að mínu mati er verkið nægilega húmórískt í mónólógunum og verður oft fyndið sökum absúrdisma og því hversu langt það gengur í að ganga fram af áhorfendum. Verkið væri betra með næstum eingöngu mónólógum og samræðum held ég, og þá væri líka hægt að jafna hlutverk persónanna þannig að við vissum álíka mikið um þau öll, ef við ætlum ekki hreinlega að fylgja Indriða eftir.

Spurningarnar sem verkið skildi eftir hjá mér voru meðal annars,
Hvað í fokkanum er þessi lokasena?
Hvers vegna er party með kynni eins og það sé í Séð og Heyrt?
Hvað er lífræn stólpípa? Er það ogeðógeðslegastaslegssta typpalíking sem ég hef heyrt síðan ég fæddist eða hvað?

Í heildina myndi ég segja að verkið sé ágæt skemmtun sem oft er hægt að hlægja að, en líður fyrir að vera of langt þannig að kjarninn leystir upp og dregur úr styrk verksins í heild.

„Já rugl, það er rétta orðið yfir ástandið eins og það er orðið.“

Lestu þetta næst

Mjóifjörður kallar

Mjóifjörður kallar

„Ég get nú ekki sagt að ég hafi kunnað vel við mig á frumkvöðlanámskeiðinu en mér þótti gaman að...

Heillandi jóladraumar

Heillandi jóladraumar

Íslenski dansflokkurinn býður upp á Jóladrauma þessa aðventu. Um er að ræða danssýningu fyrir börn...

Næturbrölt

Næturbrölt

Í fyrra lásum ég og drengurinn minn bókina Tannburstunardagurinn mikli og vorum hæstánægð. Næsta...

Að ánetjast eldri konum

Að ánetjast eldri konum

Ég hef verið áðdáandi Evu Rúnar núna í þónokkur ár. Ljóðabækurnar hennar og örsagnasöfn hafa verið...