Metsölubækur sem þú misstir kannski af

30. mars 2026

Eins og margir aðrir íslenskir lesendur á ég það til að forgangsraða íslenska jólabókaflóðinu í lestri og les oftar íslenskar skáldsögur en erlendar. Þá kemur á daginn að erlendar bækur vekja athygli mína talsvert eftir útgáfu, stundum því þær eru á leið í aðlögun á litla eða stóra skjánum eða þar sem þær hafa hægt og rólega orðið að metsölubókum. Á dögunum las ég loksins tvær góðar metsölubækur frá árinu 2024 sem henta afar vel til páskalesturs, sér í lagi sú síðarnefnda fyrir þau sem tileinka sér að lesa einn góðan páskakrimma. Bækurnar eiga lítið sameiginlegt, nema kannski að vekja athygli á stéttarmismunun í Bandaríkjunum í dag og á síðustu öld.

Margo’s Got Money Troubles

Margo’s Got Money Troubles eftir Rufi Thorpe vakti athygli mína þegar stikla fyrir samnefndum sjónvarpsþáttum byggðum á bókinni, sem væntanlegir eru úr smiðju A24, poppaði upp á samfélagsmiðlum. Bókin, eins og titillinn bendir til, segir frá Margo, tvítugri stelpu sem glímir við fjárhagsvandræði. Hún er skörp og í háskólanámi þegar hún verður óvænt ófrísk eftir kennarann sinn í enskum bókmenntum. Þrátt fyrir að eiga lítið bakland og vera með takmarkaðan fjárhag ákveður hún að eignast barnið. Margo þarf sjálf að leysa úr vandræðum sínum en hugsar út fyrir kassann og kemst í kynni við OnlyFans. Ætli það muni leysa hennar fjárhagsvandræði Margo að klæða sig upp í kynæsandi búninga og gefa typpum einkunn?

enska bókabúðin stokkhólmi

Margo’s Got Money Troubles er afar nútímalega bók, hún er grípandi, auðlesin og fersk. Það er auðvelt að láta sér þykja vænt um Margo og halda með henni og mér þótti persónugalleríið trúverðugt, enginn er algóður eða vondur og ótrúlegasta fólk reynist Margo vel á vegferð sinni sem ungri móður. 

Það verður spennandi að sjá hvernig samnefndir þættir verða. A24 framleiðslufyrirtækið framleiðir venjulega hágæðaefni, Elle Fanning mun leika Margo og eru hún og Dakota systir hennar einnig framleiðendur. Þá leika Michelle Pfeiffer og Nicole Kidman einnig í þáttaröðinni. Elle Fanning las hljóðbókina og mæli ég með að hlusta á hana.
Rönnells stokkhólmi

The God of the Woods eftir Liz Moore er spennusaga sem náði á metsölulista the New York Times og var nefnd af dagblaðinu sem ein besta spennusaga ársins 2024. Bókin hefst á því að hin þrettán ára gamla Barbara hverfur sporlaust meðan hún sækir sumarbúðir sumarið 1975, nálægt sumarhúsi fjölskyldu sinnar. Hvarf hennar vekur sérstaklega athygli þar sem eldri bróðir hennar, Peter „Bear“, hvarf sporlaust aðeins átta ára gamall á sama svæði árið 1961.

Í bókinni er flakkað á milli sögumanna og tímabila, þannig fær lesandinn að fylgjast með hvað gerist í framvindu málsins árið 1975, en einnig hvað gerðist árið 1961 og árin þar á undan sem lögðu grunn af þessu öllu saman. Ég viðurkenni að ég ruglaðist smá á köflum í ríminu milli tímasetninga þegar skipt var ört á milli, en komst að lokum alveg inn á þetta format.

Ég átti smá erfitt með að komast af stað með bókina þar sem ég náði ekki að lesa nema örfáa kafla í einu þegar ég hóf lesturinn, en þegar ég loksins gaf mér tíma til að lesa hana varð hún afar grípandi. Meðal sjónarhorna sem lesandinn fær er frá Louise, starfsmanni sumarbúðanna, Alice, móður Barböru og Bear og Judy, ungri rannsóknarlögreglukonu. Það er mikið fjallað um stéttarmun í þessari bók, til dæmis hvað varðar aðstöðumun og það hversu oft þeir ríku þurfa ekki að taka ábyrgð á sínum gjörðum. Lesandinn er oft leiddur út af sporinu sem er auðvitað frábært þegar um spennusögu ræðir. Ég mjög ánægð við lok bókarinnar (sem er í lengri kantinum eða rúmlega 400 blaðsíður) að allar upplýsingar úr fortíðinni höfðu haft merkingu fyrir fléttuna. Ég mæli klárlega með þessari bók sem páskakrimma!

Lestu þetta næst

Hvað er húð?

Hvað er húð?

Gæðablóð er sjálfsævisögulegt verk samið og flutt af þeim Davíð Þór Katrínarsyni, Jónmundi...

Alfa svíkur engan

Alfa svíkur engan

Alfa eftir Lilju Sigurðardóttur er ekki glæpasaga eftir hefðbundnu sniði, en hún fjallar þó á...

Lokkandi rós og dramatík

Lokkandi rós og dramatík

Kammeróperan setur á svið óperuna Carmen eftir franska tónskáldið Georges Bizet í Tjarnarbíó....