Allt minnir á þig, eða Reminders of Him, er sjöunda bók bandaríska rithöfundarins Colleen Hoover sem kemur út á íslensku. Hún kom út á frummálinu árið 2022 og var tilnefnd til Goodreads Choice Awards í flokki ástarsagna. Þess má einnig geta að sama ár sátu bækur Hoover í sex af tíu efstu sætunum á New York Times metsölulistanum. Hún hafði þá selt um það bil 20 milljón bækur.
Það er því ekki ofsögum sagt að Hoover er einn vinsælasti höfundurinn í dag þó víða væri leitað þó sitt sýnist hverjum um gæði bóka hennar.
Nýtt upphaf utan fangelsisveggja
Sagan hefst á því að aðalsöguhetjan Kenna Rowan losnar úr fangelsi og á þá ósk heitasta að hitta fjögurra ára dóttur sína, Diem, sem hún hefur ekki séð frá fæðingu. Kenna kemur sér fyrir í grennd við heimili ömmu og afa Diem, sem hafa alið hana upp, og eygir þá von að geta einn daginn orðið hluti af lífi þeirra. Amman og afinn vilja hins vegar ekkert með Kennu hafa og tengist það ástæðunni fyrir því að hún hlaut fangelsisdóm.
Það reynist Kennu þrautin þyngri að fóta sig utan fangelsisveggjanna. Það gengur brösulega að fá vinnu því hún er á sakaskrá, er bláfátæk og hefur ekkert bakland. Hún vingast við barþjóninn Ledger Ward og fljótlega byrja neistarnir að fljúga. Hvorugt þeirra veit hins vegar að þau eru tengd böndum sem erfitt er að rjúfa og mun í raun hafa úrslitaáhrif um framtíð sambands þeirra.
Tilfinningaþrungin, harmræn en rómantísk
Eins og Colleen Hoover er von og vísa er bókin afar tilfinningaþrungin, harmræn en líka rómantísk. Styrkleikar höfundar liggja í lýsingum á samböndum og tilfinningaumróti persónanna. Mér þykir henni takast afar vel til við að lýsa þjáningum Kennu. Það er átakanlegt að fylgjast með henni bera þungar sakir á herðum sér en reyna jafnframt að fóta sig á ný fyrir dóttur sína.
Þrátt fyrir að innra lífi Kennu séu gerð góð skil fékk ég þá tilfinningu að hún hafi sprottið alveg umkomulaus upp úr jörðinni. Það var eins og hún hafi aldrei átt neitt bakland og að allir hafi snúið við henni bakinu og að hún hafi aldrei fengið tækifæri til að segja sögu sína. Líklega var það til að leggja enn meiri áherslu á ömurlegar aðstæður Kennu, og margra annarra, sem þurfa að fóta sig á ný eftir dóm.
Þess utan var ég hrifin af ástarsögu hennar og Ledgers. Samband þeirra virðist að öllu leyti ómögulegt en aðdráttaraflið mikið. Þó finnst mér Hoover stundum fatast flugið við að skapa trúverðuga karlmenn og það var því miður raunin í þessari bók. Hins vegar veit ég að það er ekki raunin í öllum bókum hennar.
Framvinda sögunnar líður svolítið fyrir greinagóðar lýsingar á innra lífi því hún verður hæg á köflum og dálítið endurtekningarsöm.
Hæsta einkunn Hoover
Þegar þetta er skrifað er Allt minnir á þig með hæstu einkunnina á Goodreads af bókum Hoover, eða 4.33. Verity fylgir fast á hæla hennar með 4.29.
Hoover segir sjálf að innblásturinn að sögunni hafi komið frá litlu systur hennar sem skoðaði umbætur í fangelsismálum í meistaranámi sínu. Þær systur hafi rætt mikið um aðbúnað fanga og hvað taki við að fangelsisvist lokinni. Því hafi hana langað að segja sögu konu sem reynir að fóta sig á ný eftir dvöl í fangelsi.
Nýlega kom út mynd eftir bókinni og mér fannst takast vel til. Myndin var trú söguþræðinum og mér þótti leikkonan Maika Monroe sérstaklega sannfærandi í hlutverki Kennu.
Það er skammt stórra högga á milli en í haust er von á næstu mynd eftir bók Hoover. Þar er um að ræða rómantísku spennusöguna Verity. Aðdáendur Hoover eiga því von á góðu.







