Katrín Lilja

Katrín er sagnfræðingur og blaðakona sem hefur frá unga aldri setið með nefið ofan í bók. Það var henni eðlislægt. Hún trúði því að jafnaldrar hennar hefðu sömu hneigingu til bóka og það var ekki fyrr en á sextánda aldursári sem hún gerði sér grein fyrir að ef til vill var lesturinn ekki eins eðlislægur öðrum í kringum hana. Þá vöknuðu spurningar um það hvort það þætti eðlilegt að ganga með bækur á sér hvert sem var farið. Hvort það væri eðlilegt að vera með bók innanklæða eða í veskinu öllum stundum? Þegar þessar vangaveltur spruttu upp gekk hún með Góða dátann Svejk innanklæða á skólasetningarathöfn Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi. Góði dátinn var innbundin bók og fremur óhentug innanklæða. Yndislestri hrakaði ört næstu árin, samfara meiri lestri á skólabókum. En nú er skólagöngu loksins lokið og yndislesturinn óðum að hefjast aftur eftir langan dvala. Katrín les mikið af barna- og ungmennabókum enda er lesið fyrir börnin á hverju kvöldi. Einnig slæðist ein og ein skáldsaga inn á milli. Katrín er búsett á Akranesi ásamt þremur sonum, tveimur köttum og einum eiginmanni. Hún vinnur sem lausablaðamaður og sinnir eigin verkefnum í frítíma sínum ásamt því að lesa og skrifa um bækur.

Fleiri færslur: Katrín Lilja

Hrollvekja í Kópavogi

Hrollvekja í Kópavogi

Emil Hjörvar Petersen hefur skrifað tvær bækur fyrir Storytel Original; Ó, Karítas og Hælið. Sú...

Álfastúlka og smiðssonur

Álfastúlka og smiðssonur

Gunnar Theodór Eggertsson gefur út barnabókina Furðurfjall - Nornaseiður í ár. Áður hefur hann...

Hvert fara týndu hlutirnir?

Hvert fara týndu hlutirnir?

Jólasvínið efti JK Rowling kom samtímis út á fjölda tungumála í lok október og þar á meðal á...