Þetta er ekki bílastæði er önnur ljóðabókin eftir ungskáld sem kemur út hjá Unu útgáfu húsi í...
Rebekka Sif
Rebekka Sif er söngkona, rithöfundur, mamma og bókaormur með meiru. Hún hefur lokið B.A. prófi í almennri bókmenntafræði og meistaranámi í ritlist við Háskóla Íslands. Tónlistin og ritstöfin hafa heillað hana frá því í barnæsku og ákvað hún fimm ára gömul að hún myndi verða söngkona og rithöfundur. Það má segja að hennar fyrsta ljóðabók hafi komið út í tónlistarformi þegar hún gaf út plötuna sína „Wondering“ haustið 2017. En sú raunverulega kom út haustið 2020 og ber heitið Jarðvegur. Fyrsta skáldsaga Rebekku, Flot, kom út vorið 2022 en það var ekki langt í næstu þar sem Trúnaður kom út sem hljóð- og rafbók hjá Storytel í júlí sama ár. Barnabókin Gling Gló kom einnig út haustið 2022 en það hefur alltaf verið draumur hennar að skrifa fyrir börn. Hefðbundinn dagur í lífi Rebekku snýst í kringum ung börn hennar, verkefnastjórn, að skjótast um bæinn til að kenna ungum sem öldnum söng og ritlist ásamt því að koma fram sjálf af og til. Á kvöldin les hún og skrifar (þegar frestunaráráttan heltekur hana ekki) og svo horfir hún á Netflix þegar syfjan tekur yfir. Goodreads er hennar uppáhalds samfélagsmiðill en þar er best að setja sér lestarmarkmið fyrir árið og forvitnast um lestur annarra. Rebekka hefur yfirumsjón með Rithorni Lestrarklefans. rebekkasif [hjá] lestrarklefinn.is
Fleiri færslur: Rebekka Sif
Undirliggjandi kaldhæðni ástarsorgar
Ég verð að viðurkenna að mér brá þegar ég sá kápu bókarinnar Kærastinn er rjóður eftir Kristínu...
Eru fiskar okkur framar í þroska?
Svartuggar er sjöunda ljóðabók Gísla Þórs Ólafssonar. Hún er gefin út af gu/gí en þessa fallegu...
„Veðráttan í helvíti“
Nú þegar veturinn er byrjaður að gera vart við sig mæli ég með að taka upp ljóðabókina...
„Okfruma er boðskort í hólmgöngu“
Það eru ávallt spennandi fréttir þegar ný skáld ryðja sér til rúms í jólabókaflóðinu. Ljóðabókin...
Hvert einasta orð hefur tilgang
Nú á dögunum kom út bókin Eins og fólk er flest eftir Sally Rooney hjá bókaútgáfunni Benedikt....