Það styttist í Hrekkjavökuna og því er ekki úr vegi að benda á nokkrar góðar hrollvekjur sem hægt er að sökkva sér í. Hérna er listi yfir þær bækur sem fanga á ágætan hátt anda Hrekkjavökunnar eða eru einfaldlega hrollvekjandi á einhvern hátt.
Nornasaga: Hrekkjavaka
Kristín Ragna Gunnarsdóttir sendi frá sér söguna um Kötlu og baráttu hennar við nornina Gullveigu fyrir jólin2019. Sagan gerist öll á Hrekkjavöku, þegar skilin milli okkar heims og handanheims eru hverfandi lítil. Önnur bókin í seríunni er Nornasaga: Nýársnótt og sú þriðja í þríleiknum er væntanleg
Þín eigin hrollvekja
Þín eigin bækurnar hans Ævars Þórs falla nærri allar í flokkinn „svolítið hrollvekjandi“ en þó þykir mér við hæfi að hafa eingöngu Þín eigin hrollvekja á þessum lista. Það þekkja allir hvernig Þín eigin bækurnar virka, svo farðu í hrollvekjandi ferðalag um hrollvekjandi ímyndunarafl Ævars Þórs.
Hryllilega stuttar hrollvekjur
Og fyrst við erum að tala um bækur Ævars Þórs, þá eru hrollvekjusmásögurnar hans alveg æðislega hrollvekjandi. Aðeins fyrir hugrakka krakka sem eru tilbúin að láta hræða sig duglega. Er það ekki í anda Hrekkjavökunnar?
Sombína
Vinalegi uppvakningurinn Sombína býr á Hrunvöllum með frænku sinni Hálfdánu. Bækurnar eru meistaralega þýddar af Heiðu Björku Þórbergsdóttur og eru til dæmis nöfn og annað mjög margræð og skemmtileg. Þar fyrir utan er Sombína ekkert of hræðileg, þótt hún geti tekið hausinn af sér og rúllað honum eftir handleggjunum. Bækurnar um Sombínu eru nú orðnar fjórar og eru allar fallega myndskreyttar og skemmtilegar léttlestrarbækur með hrollvekjandi ívafi.
Hljóðbækur Emils Hjörvars
Emil Hjörvar Petersen hefur skrifað tvær bækur fyrir Storytel sem sækja mjög í hrollvekjurnar. Við mælum að sjálfsögðu með að fólk hlusti á bækurnar Ó, Karítas og Hælið. Hælið er líka komin út á prenti svo það er ekkert því til fyrirstöðu að þú leyfir hryllingnum að streyma.
Hin ódauðu
Íslensk þýðing á Norrænu goðunum eftir Johan Egerkranz vakti mikla athygli þegar hún kom út. Hin ódauðu er enginn eftirbátur Norrænu goðanna. Í Hin ódauðu telur Egerkranz upp alla heimsins uppvakninga og ódauð skrímsli og ljær þeim útlit, sem er oftar en ekki ansi hrollvekjandi en á sama tíma dáleiðandi. Vissuð þið til dæmis að í Japan er til uppvakningur sem er eingöngu gerður úr fitu?
Kóralína
Neil Gaiman er ótrúlegur sagnamaður og Kóralína er eitt af hans þekktustu verkum. „Kóralína er nýflutt með foreldrum sínum í íbúð sem hefur tuttugu og níu glugga og fjórtán dyr. Að þessu kemst Kóralína þegar hellirignir og hún getur ekki verið úti. Þrettán dyranna er hægt að ganga í gegnum en þær fjórtándu opnast að hlöðnum vegg. Einu sinni þegar Kóralínu leiðist opnar hún dyrnar og veggurinn er horfinn. Í stað hans blasir við íbúð alveg eins og hennar – eða næstum því. Þangað inn stígur Kóralína og um leið inn í skrýtinn heim sem erfitt reynist að losna úr.“
Brásól Brella
Saga Ásrúnar Magnúsdóttur um ungnornina Brellu er skemmtileg og lifandi. Hvað gerist þegar Brella breytir óvart pabba sínum í puntsvín? Það er erfitt að finna lausn á vandamálinu enda er Brella bara nýbúin að komast að því að hún geti töfrað. Hefst þá langur leiðangur í leit að hæfari galdramanni sem getur bjargað málunum. Á leiðinni hittir Brella vampírur og fleiri furðudýr. Bók sem hentar vel þeim sem eru að fikra sig í átt frá einföldustu léttlestrarbókunum.
Eyland
Bók Sigríðar Hagalín ratar á þennann lista, eingöngu vegna þess að mér finnst sýn hennar á framtíðina, sambandsleysi Íslands og fall fréttamannastéttarinnar svo hrollvekjandi að hún vekur mér ugg. Erna hlustaði á bókina lesna af höfundinum sjálfum og það gerir söguna líklega enn svakalegri.
World War Z
Uppvakningar, veirur og heimsendir. World War Z kemst á listann af því hún er flottasta bók um uppvakninga sem ég hef nokkru sinni lesið. Sagan talar ennþá beint inn í samtímann, ef uppvakningasóttinni er skipt út fyrir kórónaveiruna sem breiðist hraðar og hraðar út. Áhugaverð bók, vel skrifuð og nokkuð auðlesin. Svo er hægt að hlusta á hana lesna af frábærum leikurum, sem án efa gerir upplifunina af bókinni enn meiri.
Smásagan Ein heima
Rebekka Sif skrifaði mjög hrollvekjandi smásögu sem birtisti í Rithorni Lestrarklefans fyrir ekki svo löngu. Sagan segir af stelpu sem finnur lykil að læstri hurð, sem var kannski læst af góðri ástæðu.
Klassíkin
Nú svo er hægt að hella sér í lestur á klassískum verkum eins og Drakúla eftir Bram Stoker eða Frankenstein skrímslið eftir Mary Shelley.