Alfa eftir Lilju Sigurðardóttur er ekki glæpasaga eftir hefðbundnu sniði, en híun fjallar þó á fleiri en einn hátt um glæpi. Mekkín Arnardóttir er ein af sjömenningunum – teyminu sem settu á laggirnar tölvuna sem stjórnar samfélagi mannanna. Og ekki er nóg með að það geti reynst henni erfitt, þá er sonur hennar einnig að fermast um það bil sem sagan hefst. Og fermingin í þessum náframtíðarheimi er með því sniði að nú fermast börn sextán ára og ganga þar með í fullorðinna manna tölu. Og svo banka lögreglumenn upp á hjá konu hennar, henni Sabínu, og tilkynna henni um voveiflegt dauðsfall, svo hin hreina og beina útópíska veröld sem Mekkín hefur skapað fyrir sig og sína riðar skyndilega til falls.

Vel skrifuð náframtíðarsaga

 

Það sem gerir söguna einstaklega aðgengilega er í hversu nálægri framtíð hún gerist og höfundur útskýrir alveg hvernig stjórnarskiptin fóru fram þegar tölvu var gert fært að taka yfir heiminn. Þá eru ógnvekjandi sóttir og hamfarir nýttar til að sýna hvers vegna sjömenningunum fannst vert að leggjast í það verkefni að breyta stýrikerfi heimsins, án þess að nudda lesendum upp úr óskapnaði að ástæðulausu. Persónusköpun Lilju er jafnframt sannfærandi og með næmum en einföldum lýsingum kemst lesandi að því hvaða fólk þetta er sem hann er að fylgja eftir og með því að skoppa á milli sjónarhorns Júlíusar, Mekkínar og Sabínu málast upp flókin og áhrifamikil mynd af fjölskyldulífi sem er kannski ekki jafn fullkomið og lesanda sýnist í fyrstu.

Hinir óskráðu

Þá er samfélag þeirra sem neita að láta skrásetja sig af tölvunni áhugaverður vinkill, en Birkir, bróðir Sabínu, er einn af hinum óskrásettu, og í gegn um sýn litlu fjölskyldunnar á Birki sést jaðarsetning þeirra sem fella sig ekki undir tölvustýringuna og hvaða afleiðingar og útilokun það hefur í för með sér. Þá er textinn léttur og þægilegur, skrifaður á virkilega góðu og fallegu máli sem ætti þó ekki að hafa útilokandi áhrif á neinn lesendahóp. Þá er gaman að sjá að höfundur missir sig ekki í breytingum sem hafa gerst á þessum 25 árum síðan samfélaginu var breytt, því rétt eins og í raunheimum er nokkuð líklegt að hlutir eins og mannanöfn, störf og heimilishættir flestra héldust áþekkir því sem við eigum að venjast.

 Þétt og skemmtileg lesning

Ef eitthvað mætti betur fara þá er það í mesta lagi að fléttan er kannski ekki sú allra óvæntasta í heimi, ég hefði frekar verið til í óvæntari „vondan karl“ og meira spennandi afhjúpun á stöðubreytingu eins karakters milli 2027 og samtíma sögunnar, en þó er málið leyst á algerlega fullnægjandi hátt, og engin göt eða gloppur eru í sögunni, svo það er eiginlega dónalegt að kvarta yfir einhverju í svona þéttri, skemmtilegri og góðri bók sem rennur vel og heldur lesanda við efnið.

Á heildina er þetta frábær náframtíðarskáldsaga með spennandi ívafi, hversdagslegum veruleika og áleitnum hugmyndum sem skilur lesanda eftir sáttan eftir lesturinn.

Lestu þetta næst

Lokkandi rós og dramatík

Lokkandi rós og dramatík

Kammeróperan setur á svið óperuna Carmen eftir franska tónskáldið Georges Bizet í Tjarnarbíó....

Hárbeitt Ormstunga

Hárbeitt Ormstunga

 Ormstunga er glænýr íslenskur söngleikur eftir þá Hafstein Níelsson og Ólíver Þorsteinsson. Þeir...