Það er komið sumar! Að minnsta kosti að nafninu til á höfuðborgarsvæðinu, en hiklaust á Norður- og Austurlandi. Margir eru eflaust komnir í sumarfrí, á leið í sumarfrí, eða að minnsta kosti að njóta auka sólarstundanna sem sumarið býður upp á. Á sumrin nýta sumir tímann til lesturs afþreyingabóka, svo sem glæpasagna, eða ástarsagna. Aðrir nýta sumarmánuðina, sér í lagi ef þeir eru í fríi, til þess að lesa bækur sem eru of langar eða þungar til lesturs á veturna þegar dagskráin getur verið ansi stíf. Áhöfn Lestrarklefans er ýmist í fríi, á leið í frí eða nýbúin í sumarfríi og ætlar að lesa alls konar bækur yfir sumarmánuðina, hér má því finna lista yfir þær bækur sem við erum með á okkar leslista!
Leslisti Sæunnar Gísladóttur
Sökum anna síðustu vikur hef ég haft lítinn áhuga á öðru lesefni en skvísubókum Jenny Colgan. Undantekningin var hin frábærlega breska spennusaga The Thursday Murder Club eftir Richard Osman. Í byrjun júní fór ég til Akureyrar í bongóblíðu og sat úti allan daginn með hina indælu Litla bókabúðin í hálöndunum. Bókin segir frá Ninu sem ákveður að kaupa gamlan sendibíl og opna í honum bókabúð sem hún getur farið á hvert sem er. Á þessu annars ágæta plani hennar eru þó nokkrir hnökrar og hún getur ekki verið með bílinn í Birmingham þar sem hún býr. Hún lætur það þó ekki stoppa sig og ákveður að flytja til Skotlands. Þar leigir hún hlöðu hjá bónda sem er skapstór og fúllyndur. Samskipti þeirra eru að mestu leyti stirð og stíf og hann pirrar sig á nánast öllu sem að Nina tekur sér fyrir hendur. Inn í bókabúðarævintýri Ninu fléttast ástarævintýri við lestarstjóra, fjörug vinkona úr borginni og aðrir líflegir karakterar sem hún kynnist og afgreiðir. Stórgóð bók sem óhætt er að mæla með.
Þegar ég frétti af nýrri bók í sömu seríu Litla bókabúðin við vatnið varð ég auðvitað að lesa hana líka. Þar segir frá Zoe sem flytur til Skotlands frá London til að leysa Ninu af í starfi og gæta ungra barna. Bókin náði ekki alveg jafn vel til mín og sú fyrri en var engu að síður kærkomið hugarferðarlag til fallegu skosku hálandanna. Þess má geta að ekki þarf að hafa lesið þá fyrri til að geta notið þeirrar síðari. Mér tókst líka á síðasta mánuði að lesa um Flóru sem rekur eldhús á skálduðu skosku eyjunni Mure í Ströndinni endalausu sem var falleg bók í bókaflokknum um Sumareldhús Flóru (ég hafði ekki lesið fyrstu bókinni en náði alveg að koma mér inn í þessa). Síðan rifjaði ég líka upp kynnin við Polly í Cornwall í Sumar í Litla bakaríinu við Strandgötu, framhaldsbók Litla bakarísins við Strandgötu sem ég las fyrir nokkrum árum. Skemmst er frá því að segja að nú er ég búin að pakka í töskurnar og hygg á flutninga á afskekktan stað í Bretlandi til að stofna eigið fyrirtæki og finna mér þöglan, myndarlegan mann.
Leslisti Katrínar Lilju Jónsdóttur
Ég er enn að bíða eftir því að komast í sumarfrí frá vinnunni, en nýti helgarnar til að fara í útilegur með fjölskyldunni. Þegar farið er í útilegur eru alltaf teknar með bækur og því eru lesnar margar barnabækur. Auk þess höfum við komist á lag með hljóðbækur í löngum bílferðum og inn á milli kíkjum við á Sumarið í sveitinni og spreytum okkur á skemmtilegum spurningum.
Það er ansi spennandi útgáfan í sumar. Ég kláraði Litlu bókabúðina við vatnið eina helgina í útilegu, renndi mér lipurlega aftur í gegnum Sumarbókina eftir Tove Jansson (skyldulestur að sumri til), kláraði Vanessa mín myrka og var djúpt snortin, ætla að lesa Leyndarmál eftir Sophie Kinsella og hef sett mér markmiðið að lesa Fjarvera þín er myrkur eftir Jón Kalman í sumar líka. Ætli Kalman endi ekki í ágúst.
Leslisti Rebekku Sifjar Stefánsdóttur
Leslisti Díönu Sjafnar Jóhannsdóttur
Leslisti Önnu Margrétar Björnsdóttur
Í byrjun ársins datt ég á bólakaf í A Court of Thorns and Roses seríu Sarah J. Maas, en það er ekki þverfótað fyrir tilvitnunum í þær á bókagraminu. Ég hafði takmarkaðar væntingar til bókanna, en þær komu mér ótrúlega skemmtilega á óvart og mig þyrsti í meira efni í sama dúr þannig að ég ákvað að demba mér í Throne of Glass seríu sama höfundar.
Þegar við tókum saman leslistann okkar í mars fjallaði ég um þessa seríu og hvernig ég hefði m.a. verið vöruð við henni af bókhneigðu fólki í kringum mig. Ég talaði líka stuttlega um það hvernig ég væri smám saman að átta mig á því að þetta fólk hefði haft fullkomlega rétt fyrir sér. Til að gera langa sögu stutta þá hefur þessi sería staðið í mér frá því í mars og ég er ekki ennþá farin að ná góðum takti. Ég á líka mjög erfitt með að einbeita mér að nokkru öðru á meðan og því er alveg gríðarlega lítil hreyfing á leslistanum hjá mér á meðan.
Ég er þó með ýmislegt annað spennandi á leslistanum sem bíður þess að ég rífi mig upp úr þessum lestrardampi. Af því má nefna Cruel Prince seríu Holly Black, Bridgerton bækurnar og nýjustu bók Abby Jimenez, Life’s too Short, en ég var mjög hrifin af fyrri bókum hennar og ber miklar væntingar til þeirrar nýjustu. Ég er líka með The Switch eftir Beth O’Leary á leslistanum hjá mér, en hún skrifaði líka The Flatshare, sem ég skrifaði einmitt pistil um, en hann má nálgast hér.
Fantasíur eru yfirleitt fyrirferðarmiklar á leslistanum mínum og ég bíð spennt eftir að kafa ofan í Gideon the Ninth, en ég hef heyrt gríðarlega góða hluti um hana. We Hunt the Flame, eftir Hafsah Faizal, er líka mjög ofarlega á listanum hjá mér, sem og Witches Steeped in Gold, eftir Ciannon Smart. Ég er líka búin að vera með The Witch’s Heart á leslistanum hjá mér frá því löngu áður en hún kom út, en þekki engan sem hefur lesið hana og veit því ekki alveg við hverju er að búast.
Af nýlegu íslensku efni er ég spenntust fyrir Að telja upp í milljón, en ég er líka ennþá með 107 Reykjavík á leslistanum hjá mér frá því um jólin. Eyland og Eldarnir hennar Sigríðar Hagalín eru báðar á listanum frá því áður en ég datt ofan í ungmennabækurnar af fullum krafti fyrir jól, sem og Um tímann og vatnið eftir Andra Snæ Magnússon, en ég keypti hana á síðasta bókamarkaði í Laugardalnum og á ennþá eftir að lesa hana.
Leslisti Sjafnar Hauksdóttur
Ég var að lesa The Yellow House eftir Sarah M. Broom sem er ættarsaga/endurminning svartrar fjölskyldu í New Orleans, mjög áhugaverð. Svo er ég búin að lesa svona 2000 óeftirminnilegar spennusögur – sú eina sem stóð smá uppúr er Stillhouse Lake, sem fjallar um konu sem kemst að því að maðurinn hennar er fjöldamorðingi (vandræðalegt).
Í hljóðbókabransanum var ég að klára Being Heumann eftir Hudith Heumann sem er aktívisti og Inside My Outside eftir Sarah Pyszka sem er smá sérstök endurminningasaga því hún fjallar um fjóra daga í lífi Söru sem notast við NPA .. og svo var ég að byrja að hlusta á The Time Travelers Guide to Medieval England! Sem byrjar vel og er um já, England á miðöldum.