Nú keppast höfundar við að frumsýna bókakápur og tilkynna um nýjar bækur sem eru væntanlegar í hinu dásamlega jólabókaflóði Íslendinga. Hér að neðan getur þú séð hvaða bækur eru á leiðinni og höfundar hafa deilt á samfélagsmiðlum, bara svona til að auka á spennunni sem við lesendur finnum nú þegar fyrir!
Bronsharpan eftir Kristínu Björg Sigurvinsdóttur
Önnur bókin í Dulstafa-seríu Kristínu Bjargar er komin í prentun. Sú fyrsta, Dóttir hafsins, fékk tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki barna- og ungmennabóka. Framhaldið ber heitið Bronsharpan en hér má lesa stuttlega um innihald bókarinnar: „Rúmu ári eftir ævintýrið í hafinu er Elísa stödd í ókunnum heimi. Þar kynnist hún fjórum ungmennum sem hafa svipaða krafta og hún. Gæslumenn grunnefnanna hafa verið kallaðir saman til að bjarga deyjandi heimi. Tekst þeim ætlunarverk sitt?“
Ljósagangur eftir Dag Hjartarson
Dagur Hjartarson hefur getið sér gott orð síðustu ár bæði sem ljóðskáld og skáldsagnahöfundur. Myndin hér til hliðar var birt af höfundinum sjálfum en einnig fylgdi mynd af baksíðu kápunnar þar sem stendur: „Þegar eðlisfræðin og ljóðið mætast verður til Ljósagangur, skáldsaga engri lík. Þetta er vísindaskáldsaga, fantasía, spennusaga en umfram allt: ljóðræn og tregafull ástarsaga full af fegurð og frumleika.“ Þetta er þriðja skáldsaga hans en hann hefur áður gefið út skáldsögurnar Síðasta ástarjátningin og Við erum ekki morðingjar.
Kákasus-gerillinn eftir Jónas Reyni Gunnarsson
Ný skáldsaga úr smiðju Jónasar Reynis má vænta í októbermánuði. Bókin ber hið forvitnilega heiti Kákasus-gerillinn en á baksíðu bókarinnar sem höfundurinn deildi sjálfur á facebook síðu sinni segir meðal annars: „Bára er hugfangin af öllu sem fólk setur ofan í sig til að breyta líðan sinni; mat, kaffi, áfengi, lyfjum, vímuefnum … Um þetta ætlar hún að fjalla um í hlaðvarpsþáttunum Eitur í flösku. Í heimildaleitinni rekst hún á nafn Eiríks Mendez, íslensks-mexíkósks áhugaljósmyndara sem lést ungur að árum, en sá orðrómur hefur lengi verið á kreiki að hann hafi tengst vafasömum tilraunum með ofskynjunarlyf.“
Gratíana eftir Bennýju Sif Ísleifsdóttur
Í október er von á framhaldi á bókinni Hansdætur eftir Bennýju Sif. Bókin ber heitið Gratíana og gaman er að segja frá því að Sæunn okkar hérna hjá Lestrarklefanum biðlaði einmitt til Bennýjar að skifa meira um Gratíönu í ritdómi sínum um bókina: „Það er ekki oft sem ég klára bók og þrái framhald en nú biðla ég til höfundarins: Megum við fá frekari frásagnir af Gratíönu?“. Spennandi verður að sjá hver framvindan verður í lífi Gratíönu í þessari nýju bók.
Breytt ástand eftir Berglindi Ósk Bergsdóttur
Hvaða bók hefur þú rekið augun í sem við höfum misst af? Sendu okkur línu á Lestrarklefinn [hjá] lestrarklefinn.is eða taggaðu okkur í færslu á samfélagsmiðlum.
Kíktu á þessar færslur eða flokka og finndu næstu bók fyrir þig:
Ekta írskar ástarsögur
Í maí síðastliðnum kom út bók sem gífurleg eftirvænting var fyrir en það var Long Island eftir írska rithöfundinn Colm Tóibín. Bókin er framhald af hinni geysivinsælu Brooklyn sem kom út árið 2010 eða fyrir heilu fermingarbarni síðan. Sú bók var kvikmynduð en hin...
Tíminn teygir úr sér
X eftir Alistair McDowall Klukkan er 20:07 og Ray er að fá sér að borða. Gilda orðar áhyggjur sínar af því að ekkert hafi heyrst frá jörðu í þrjár vikur. Ray bendir henni á að auðvitað komi einhver að sækja þau, enginn myndi senda allar þessar dýru græjur til Plútó...