Stúfur fer í sumarfrí

8. júlí 2022

Þegar Kertasníkir hefur skriðið aftur til fjalla á Þrettándanum fréttum við ekkert af jólasveinunum fyrr en 11. desember. Sjálf hef ég litið svo á að jólasveinarnir leggist i dvala, feli sig fyrir sól og hita. Þeir eru nú einu sinni einhvers konar tröll. Eða svo hélt ég! En Eva Rún Þorgeirsdóttir og Blær Guðmundsdóttur hafa flett hulunni af sumarverkefnum jólasveinnanna í nýjustu bók Ljósaseríunnar Stúfur fer í sumarfrí. Áður hafa komið út bækurnar Stúfur hættir að vera jólasveinn og Stúfur leysir ráðgátu.

Stúfi dauðleiðist uppi í fjöllunum á sumrin. Það er allt hálf dauft og eini leikurinn sem þeim bræðrum dettur í hug að leika er Stafakast, sem verður fljótt leiðinlegt. Stúf langar að upplifa ævintyri. Til allrar hamingju hefur hann kynnst Lóu. 

Á ferðalagi með jólasveini

Stúfur sendir vinkonu sinni póst með bréfdúfu þeirra jólasveina, Jólakettinum. Hann vill gjarnan gera eitthvað með henni yfir sumarið, breyta til. Það vill svo til að Lóa er einmitt á leið til Ítalíu daginn eftir og í svarbréfi sínu býður hún honum Stúfi með sér. Stúfur stekkur á tækifærið og fer með fjölskyldunni til Ítalíu, þrátt fyrir smá efasemdir foreldra Lóu um það að ráðlegt sé að taka jólasvein með í sumarfríið. Stúfur upplifir margt í fyrsta sinn. Hann fer í flugvél, fær sér ís, fer út að borða. Svo upplifir hann líka alvöru sumarhita! Lóa og Stúfur skemmta sér vægast sagt vel saman á Ítalíu. Og þau borða mikinn ís! 

Einföld hversdagssaga

Eva Rún Þorgeirsdóttir skrifar sögurnar um Stúf og blandar saman hæfilegu magni af lærdómi og húmor. Blær Guðmundsdóttir sér um myndlýsingar. Venjulega hafa bækur í Ljósaseríunni komið út með svarthvítum myndum, en að þessu sinni eru myndirnar í lit. Það kemur mun betur til skila öllum tómatsósuslettunum sem sullast út um allt þegar Stúfur fer í fyrsta sinn á veitingastað. 

Þótt aðalsöguhetja bókarinnar sé jólasveinn, sem oftast sést ekki á sumrin, þá er sagan hversdagsleg þótt sumir viðburðir í bókinni séu ýktir. Þessa dagana eru margir á ferðalagi og fjölmörg börn sem eru að fara í fyrsta sinn til útlanda. Stúfur þarf ýmislegt að læra, til dæmis umgengnisvenjur á flugvöllum og hvað ber að gera á veitingastöðum. Bók sem þessi gefur ágætis innsýn í hvernig sumarfríið gæti orðið. Það eru strandarferðir, ísát, safnaferðir og annað skemmtilegt sem bíður barnanna. En það er líka stundum meiri hiti en við eigum að venjast og þá er gott að muna eftir stuttbuxum, léttri skyrtu og vatninu. Allt þetta lærir Stúfur. 

Bókin hentar mjög vel í fríið fyrir lestrarhesta. Einnig er hægt að grípa með þrautabókina sem unnin er upp úr sögunni. Það er ágætis tvenna í fríið.

 

Ljósaserían

Bækur úr Ljósaseríunni eru sérstaklega hannaðar léttlestrarbækur fyrir börn sem hafa náð ágáætis tökum á lestri og vilja meiri sögu en ekki of þunga bók. Letur í bókunum er þægilegt, línubil gott og málsgreinar stuttar. 

Hægt er að skrá sig í Ljósaseríuklúbbinn og fá heimsendar fjórar bækur á ári.

Lestu þetta næst

Yrsa, Kuldi og klækjabrögð

Yrsa, Kuldi og klækjabrögð

Kuldi eftir Yrsu Sigurðardóttur kom út árið 2012, en bíður nú nýtt líf þar sem kvikmynduð útgáfa...

Barist við Miðgarðsorm

Barist við Miðgarðsorm

Skólarnir eru byrjaðir og fróðleiksfúsir nemendur flykkjast um götur og stræti á leið í sína...

Pageboy

Pageboy

Kanadíski leikarinn Elliot Page skaust upp á stjörnuhimininn þegar hann lék ófrískan ungling í...

Bókin sem ég þurfti

Bókin sem ég þurfti

Not Too Late: Changing the Climate Story from Despair to Possibility í ritstjórn Rebecca Solnit og...

Sögur sem leyna á sér

Sögur sem leyna á sér

Hinum megin við spegilinn er brakandi ferskt smásagnasafn eftir Kára S. Kárason sem kveður sér hér...